01 júlí 2026

/

Styrkir Matthildarsamtökin um 7 milljónir króna vegna Reyks

{image.Description}
Gárur á vatni

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að styrkja Matthildarsamtökin um tæpar sjö milljónir króna vegna reksturs skaðaminnkunarverkefnisins Reyks. Verkefnið snýst um að veita einstaklingum sem reykja ópíóíða eða örvandi vímuefni skaðaminnkandi þjónustu og viðeigandi búnað, einföld vímuefnapróf, naloxone nefúða við ofskömmtun o.fl. Þjónusta Reyks er veitt notendum án endurgjalds og hefur náð til einstaklinga sem af ýmsum ástæðum hafa ekki nýtt sér önnur úrræði en eru í verulegri áhættu vegna vímuefnanotkunar.

Þjónusta Reyks er veitt með vettvangsþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og með síma- og ráðgjafarþjónustu fyrir einstaklinga um allt land. Reykur er mikilvæg viðbót við aðra skaðaminnkandi þjónustu á Íslandi, svo sem vettvangsþjónustu Frú Ragnheiðar og neyslurýmið Ylju. Reynslan sýnir að einstaklingar sem leita eftir þjónustu Reyks standa margir hverjir utan hefðbundinna þjónustukerfa. Þjónustan gegnir því mikilvægu hlutverki, bæði til að draga úr neikvæðum heilsufarslegum afleiðingum vímuefnanotkunar og efla öryggi notenda og til að skapa tengingu við frekari heilbrigðis- og félagsþjónustu þegar þörf krefur.

Styrkurinn til Matthildarsamtakanna verður veittur á grundvelli samnings til 12 mánaða.