02 júlí 2026

/

Samkomulag EFTA og Víetnam um fríverslunarsamning í höfn

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt Kurt Jager, framkvæmdastjóra EFTA, Sabine Monauni, utanríkisráðherra Lichtenstein, Nguyen Sinh Nhat Tan, iðnaðarráðherra Víetnam, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, og Guy Parmelin forseta Sviss.

Viðræðum EFTA-ríkjanna, þ.e. Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss, um gerð fríverslunarsamnings við Víetnam er lokið, en samkomulag milli ríkjanna náðist á nýafstöðnum ráðherrafundi EFTA sem fram fór í Reykjavík þann 22. júní síðastliðinn.

Á fundinum sammæltust ráðherrar EFTA-ríkjanna og iðnaðarráðherra Víetnam um lok samningaviðræðnanna og hefur samkomulagið nú verið staðfest af öllum fimm ríkjunum. 

Samninganefndir EFTA-ríkjanna og Víetnams funduðu vikulangt í Reykjavík í aðdraganda ráðherrafundarins, þar sem gengið var frá þeim atriðum sem útaf stóðu. Niðurstaða þeirrar vinnu lagði grunninn að samkomulaginu sem ráðherrar ríkjanna fimm hafa nú samþykkt. 

„Samkomulag við Víetnam um fríverslunarsamning er stór áfangi fyrir EFTA, en samningurinn kemur til með að styrkja viðskiptatengsl EFTA-ríkjanna við eitt mest vaxandi hagkerfi Asíu. Þá er auðvitað sérstaklega ánægulegt að síðasta samningalotan hafi farið fram á Íslandi og að lokahnúturinn hafi verið bundinn á ráðherrafundi EFTA í Reykjavík,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. 

Um er að ræða umfangsmikinn og nútímalegan fríverslunarsamning sem tekur meðal annars til vöru- og þjónustuviðskipta, fjárfestinga, opinberra innkaupa, hugverkaréttinda auk viðskipta og sjálfbærrar þróunar. Samningurinn kemur til með að bæta markaðsaðgang íslenskra fyrirtækja í Víetnam og skapa aukin tækifæri til vöru- og þjónustuviðskipta sem og fjárfestinga.

Á síðasta ári námu vöruviðskipti Íslands og Víetnam rúmum tíu milljörðum króna. Þar af nam útflutningur Íslands um 452 milljónum króna og samanstóð að megninu til af sjávarafurðum, einkum makríl. Innflutningur frá Víetnam á sama tímabili nam hins vegar tæplega 9,8 milljörðum króna en þar var aðallega um að ræða rafeindabúnað, skófatnað og annan fatnað.

Fríverslunarviðræður EFTA og Víetnam voru teknar upp að nýju í september 2025 eftir að hafa legið að mestu niðri síðan árið 2018. Stefnt er að undirritun samningsins í haust og í kjölfarið verður hann fullgiltur í hverju ríki fyrir sig áður en hann tekur formlega gildi.