07 júlí 2026

/

Mál nr. 160/2025 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 15. júní 2026

í máli nr. 160/2025

 

A

gegn

B

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að riftun varnaraðila sé ólögmæt.

Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.

Eftirtalin gögn, ásamt fylgiskjölum, voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, móttekin 20. nóvember 2025.

Greinargerð varnaraðila, dags. 3. og 11. desember 2025.

Athugasemdir sóknaraðila, mótteknar 16. desember 2025.                                       

Viðbótargögn varnaraðila, móttekin 16. janúar 2026 og 12. mars 2026.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 1. maí 2025 til 31. október 2026 um leigu sóknaraðila á íbúð varnaraðila að C. Með yfirlýsingu, dags. 3. október 2025, rifti varnaraðili leigusamningi aðila á þeim forsendum að leiga væri vangreidd af hálfu sóknaraðila. Ágreiningur er um lögmæti riftunar varnaraðila.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili kveður málið varða ólögmæta riftun varnaraðila á leigusamningi aðila. Varnaraðili hafi vanrækt að tryggja það að samningurinn væri skráningarhæfur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem hafi leitt til þess að hann hafi misst af tveimur mánuðum af húsnæðisbótum. Þá hafi varnaraðili áreitt sóknaraðila, meðal annars með því að slökkva daglega á rafmagni, fara ólöglega inn í hið leigða rými og ráðast að sóknaraðila.

III. Sjónarmið varnaraðila

Varnaraðili krefst frávísunar málsins enda hafi sami ágreiningur fengið úrlausn hjá dómstólum.

IV. Niðurstaða

Varnaraðili gerir kröfu um frávísun málsins enda hafi ágreiningur aðila verið borinn undir dómstóla. Kröfur sóknaraðila lúta að því að viðurkennt verði að riftun varnaraðila á leigusamningi aðila sé ólögmæt á þeim forsendum að varnaraðili hafi vanrækt skyldu sína til að skrá leigusamninginn opinberlega og beitt sóknaraðila ýmiss konar áreiti sem og ranglega sakað hann um að vangreiða leigu.

Í úrskurði héraðsdóms sem kveðinn var upp 15. janúar 2026 er skorið úr um framangreint ágreiningsefni þar sem fallist var á útburðarbeiðni varnaraðila og þar með riftun hans á leigusamningi aðila á þeim forsendum að sóknaraðili hafi vanefnt leigugreiðslur. Ágreiningur um lögmæti riftunar varnaraðila á leigusamningi aðila á þeim forsendum að sóknaraðili hafi vangreitt leigugreiðslur hefur þannig komið til úrlausnar hjá dómstólum og þannig hefur sama ágreiningsefni milli sömu aðila um sömu málsatvik og byggir á sama lagagrundvelli verið borið undir dómstóla og kærunefnd húsamála. Varnir sóknaraðila fyrir dómstólum byggðu enda á sama grunni og kæra hans til kærunefndar. Þar sem fyrir liggur dómsniðurstaða um sama ágreiningsefni og mál þetta varðar verður fallist á frávísunarkröfu varnaraðila.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.

ÚRSKURÐARORÐ:

Kæru sóknaraðila er vísað frá kærunefnd.

 

Reykjavík, 15. júní 2026

 

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

 

Þorvaldur Hauksson                                 Eyþór Rafn Þórhallsson