07 júlí 2026

/

Mál nr. 20/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 8. maí 2026
í máli nr. 20/2026:
Fólkvangur ehf.
gegn
Reykjavíkurborg og
Terra einingum ehf.

Lykilorð
Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.

Útdráttur
Kærunefndin útboðsmála féllst á kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar í útboðinu yrði aflétt, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga um opinber innkaup.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 21. apríl 2026 kærir Fólkvangur ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Reykjavíkurborgar (hér eftir „varnaraðili“) nr. 16269 auðkennt „Leikskólinn Jöfri. Kennslustofur. Hönnun, smíði og lóðafrágangur“.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun varnaraðila, um að taka tilboði annars bjóðanda, verði felld úr gildi og lagt verði fyrir varnaraðila að endurmeta tilboð kæranda og annarra bjóðenda í samræmi við útboðsskilmála og lög nr. 120/2016 um opinber innkaup. Til vara krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á því að málsmeðferð varnaraðila hafi verið í andstöðu við lög um opinber innkaup, einkum meginreglur um jafnræði, gagnsæi, meðalhóf og rannsóknarskyldu. Þá krefst kærandi í báðum tilvikum að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað.

Varnaraðila og Terra einingum ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Athugasemdir bárust frá Terra einingum ehf. 30. apríl 2026 og varnaraðila 7. maí 2026.

Varnaraðili krefst þess að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar í útboðinu verði aflétt. Þá krefst varnaraðili þess aðallega að aðal- og varakröfu kæranda verði vísað frá og öllum öðrum kröfum kæranda verði hafnað. Til vara krefst varnaraðili þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað. Jafnframt krefst varnaraðili þess að kærunefndin úrskurði kæranda til greiðslu málskostnaðar á grundvelli síðari málsliðar 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Terra einingar ehf. krefst þess að kærunni verði hafnað í heild sinni og að staðfest verði réttmæti ákvörðunar varnaraðila um að hafna tilboði kæranda og velja tilboð Terra eininga ehf.

Í ákvörðun þessari verður leyst úr kröfu varnaraðila um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar en málið bíður að öðru leyti efnislegrar úrlausnar.

I

Með útboðsgögnum, dagsettum í febrúar 2026, óskaði varnaraðili eftir tilboðum í hinu kærða útboði. Í grein 0.5.2, sem bar yfirskriftina „Kröfur um hæfi vegna fjárhagsstöðu“, kom fram að kröfur um hæfi fjárhagsstöðu til bjóðenda kæmu fram í tilteknu excel-skjali sem fylgdi útboðsgögnum. Í skjalinu kæmi jafnframt fram hverju bjóðendur þyrftu að skila til að sýna fram á hæfi sitt. Uppfylltu bjóðendur ekki framsettar kröfur útboðsgagna um „hæfi vegna starfsréttinda“ yrði tilboðum þeirra hafnað. Þá kom fram í grein 0.6 að öll atriði sem varnaraðili óskaði eftir að fylgdu með tilboði bjóðanda kæmu fram í umræddu excel-skjali. Lögð væri rík áhersla á að bjóðendur skiluðu umbeðnum gögnum með tilboði sínu og gerðu þeir það ekki kynni það að valda ógildingu tilboðs. Þá kom fram í grein 0.3 að bjóðendur gætu sent varnaraðila fyrirspurnir við meðferð útboðsins, meðal annars ef þeir vildu óska eftir nánari upplýsingum eða skýringum á útboðsgögnum.

Í framangreindu excel-skjali var meðal annars gerð sú krafa að bjóðandi skyldi vera með jákvætt eigið fé sem næmi 10% af tilboðsfjárhæð og að bjóðandi skyldi skila með tilboði sínu síðast gerðum ársreikningi, eigi eldri en 23 mánaða.

Með tölvupósti 16. apríl 2026 tilkynnti varnaraðili bjóðendum að hann hefði ákveðið að velja tilboð Terra eininga ehf. Þá kom fram í tölvupóstinum að tilboði kæranda væri hafnað á þeim grundvelli að hann uppfyllti ekki fjárhagskröfur í útboðinu þar sem eigið fé hans væri neikvætt.

Kærandi byggir á að varnaraðila hafi verið óheimilt að hafna tilboði félagsins á þeim grundvelli að eigið fé hans hafi verið neikvætt og rökstyður sjónarmið sín þessu tengdu með ítarlegum hætti í kæru. Varnaraðili byggir í meginatriðum á að eigið fé kæranda hafi verið neikvætt samkvæmt framlögðum ársreikning fyrir árið 2024 og hann hafi því ekki uppfyllt kröfuna.

II

Kæra málsins hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Í 1. mgr. 107. gr. laganna kemur fram að ef ákvörðun um val tilboðs er kærð innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. laganna sé gerð samnings óheimil þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar getur kærunefnd, hvort heldur að kröfu varnaraðila eða að eigin frumkvæði, ákveðið að aflétta banni við samningsgerð, en við slíka ákvörðun gilda ákvæði 110. gr. laganna eftir því sem við á. Í því felst að einungis á að viðhalda stöðvun hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögum um opinber innkaup eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.

Á þessu stigi málsins þykir mega miða við að í útboðinu hafi skýrlega verið gerð krafa um að eigið fé bjóðenda skyldi vera jákvætt um 10% af tilboðsfjárhæð, sbr. 69. og 72. gr. laga nr. 120/2016. Jafnframt að til staðfestingar á þeirri kröfu skyldu bjóðendur leggja fram síðast gerðan ársreikning sem skyldi ekki vera eldri en 23 mánaða. Þá verður ekki ráðið af fyrirliggjandi gögnum að kærandi hafi óskað eftir nánari skýringum eða upplýsingum á inntaki kröfunnar eða skilagögnum henni tengdri, líkt og honum hefði verið í lófa lagið að gera teldi hann fyrirmæli útboðsgagna vera óljós að þessu leyti.

Meginregla útboðsréttar er sú að bjóðendur bera ábyrgð á tilboðum sínum og að þeim sé skilað í samræmi við kröfur útboðsgagna, eftir atvikum eins og þeim hefur verið breytt eða þau nánar skýrð við meðferð útboðsins, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála 20. september 2022 í máli nr. 15/2022.

Af fyrirliggjandi gögnum verður ráðið að kærandi hafi staðfest í tilboði sínu að hann uppfyllti viðkomandi kröfu. Á meðal tilboðsgagna kæranda var á hinn bóginn ársreikningur kæranda fyrir árið 2024 en samkvæmt honum var eigið fé kæranda neikvætt um rúmlega 27 milljónir króna í lok árs 2024. Ekki liggja fyrir önnur gögn um fjárhagsstöðu kæranda á þessu stigi málsins. Samkvæmt framangreindu þykir á þessu stigi málsins mega miða við að varnaraðila hafi verið skylt að hafna tilboði kæranda í útboðinu, sbr. 1. mgr. 66. gr. og 82. gr. laga nr. 120/2016. Þá verður ekki séð að varnaraðili hafi brotið gegn meginreglum útboðsréttar um jafnræði, gagnsæi og meðalhóf við meðferð útboðsins, sbr. 1. mgr. 15. gr. laga nr. 120/2016.

Samkvæmt framangreindu og að virtum fyrirliggjandi gögnum og málatilbúnaði aðila að öðru leyti þykir mega miða við, eins og málið liggur fyrir nú, að ekki hafi verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim sem geti leitt til ógildingar á ákvörðun eða öðrum athöfnum varnaraðila. Samkvæmt þessu verður fallist á kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar í útboðinu verði aflétt, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.

Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar aðilar hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.

Ákvörðunarorð:

Aflétt er stöðvun samningsgerðar í útboði varnaraðila, Reykjavíkurborgar, nr. 16269 auðkennt „Leikskólinn Jöfri. Kennslustofur. Hönnun, smíði og lóðafrágangur“.


Reykjavík, 8. maí 2026.


Reimar Pétursson

Kristín Haraldsdóttir

Auður Finnbogadóttir