07 júlí 2026
/
Ný reglugerð um skólaheilsugæslu grunnskólabarna
Heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð um skólaheilsugæslu grunnskólabarna. Reglugerðin er sett á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu og með henni er í fyrsta sinn mörkuð heildstæð umgjörð um skipulag og framkvæmd skólaheilsugæslu á landsvísu. Reglugerðin tekur gildi 1. janúar 2027.
„Ný reglugerð um skólaheilsugæslu markar tímamót og varðar veginn fyrir eflingu og þróun skólaheilsugæslu um land allt. Í skólaheilsugæslu felast mikil tækifæri til að fylgjast betur með heilsu og líðan barna, sinna forvörnum og geðrækt. Með reglubundnum heilbrigðisskoðunum, markvissri heilbrigðisfræðslu, ráðgjöf og heilsueflingu er lögð áhersla á snemmtæka íhlutun og samfellda þjónustu við börn. Málefni barna eru áherslumál ríkisstjórnarinnar. Það er von mín að efling skólaheilsugæslu muni bæta heilsu og líðan íslenskra skólabarna til framtíðar" segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
Markmið reglugerðarinnar er að efla heilbrigði barna og stuðla að vellíðan þeirra með því að tryggja samræmda, gagnreynda og aðgengilega skólaheilsugæslu um land allt. Í reglugerðinni er m.a. kveðið á um skipulag og skráningu þjónustunnar og að hún skuli veitt samkvæmt leiðbeiningum embættis landlæknis. Fjallað er um hlutverk skólaheilsugæslu sem m.a. felur í sér reglubundnar heilsufarsskoðanir, skimanir, heilbrigðisfræðslu, forvarnir, ráðgjöf og heilsueflingu. Innleiðing á skimun fyrir ofbeldi er vel á veg komin og stefnt er að innleiðingu heyrnarskimunar á næstunni.
Drög að reglugerðinni voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í febrúar 2026 og bárust 25 umsagnir frá heilbrigðisstofnunum, fagfélögum, hagsmunasamtökum, embætti landlæknis, mennta- og barnamálaráðuneytinu og öðrum hagaðilum. Auk þess efndi heilbrigðisráðuneytið til vinnustofu með hagaðilum heilbrigðis- og menntakerfisins, þar sem markmiðið var að ná sameiginlegum skilningi á stöðunni í dag, kortleggja helstu áskoranir og móta og forgangsraða aðgerðum til umbóta. Í kjölfar samráðs voru gerðar ýmsar breytingar á drögunum.
Samráðsferlið skilaði mikilvægu framlagi til útfærslu reglugerðarinnar. Meðal breytinga sem gerðar voru í kjölfar sjónarmiða sem fram komu í samráðinu eru:
- aukin áhersla á geðheilbrigði, geðheilbrigðisforvarnir, snemmtækan stuðning og viðeigandi viðbrögð innan skólaheilsugæslu,
- skýrari ákvæði um samstarf við aðra fagaðila og samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna,
- endurskoðuð ákvæði um tannheilsu barna með áherslu á eftirfylgd barna sem ekki eru í reglubundnu tanneftirliti og munnskoðun barna sem ekki hafa aðgang að heimilistannlækni,
- aukin fræðsla í samvinnu við sóttvarnalækni um kynheilbrigði, sóttvarnir og skynsamlega notkun sýklalyfja.
Fleiri atriði komu fram í samráðsferlinu sem verða áfram til skoðunar við framkvæmd reglugerðarinnar, útgáfu leiðbeininga og frekari stefnumótun á sviði skólaheilsugæslu.
Innleiðing
Reglugerðin tekur gildi þann 1. janúar 2027 og verður tími fram að gildistöku nýttur til undirbúnings og innleiðingar. Á næstu mánuðum verður unnið að framkvæmdaáætlun í samvinnu við hagaðila, útgáfu leiðbeininga embættis landlæknis, samræmingu verklags og samstarf við heilbrigðisstofnanir, skólayfirvöld og aðra lykilhagaðila.