08 júlí 2026
/
Mál nr. 19/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 12. maí 2026
í máli nr. 19/2026:
Háfell ehf.
gegn
Veitum ohf. og
Jarðvali sf.
Lykilorð
Ákvörðun um val tilboðs afturkölluð. Lögvarðir hagsmunir. Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.
Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála aflétti sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 17. apríl 2026 kærði Háfell ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Veitna ohf. (hér eftir „varnaraðili“) nr. VEV-2026-02 auðkennt „Drápuhlíð – Langahlíð – Endurgerð gatna og endurnýjun lagna.“
Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila frá 9. apríl 2026, um að velja tilboð Jarðvals sf. og hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði, verði felld úr gildi. Kærandi krefst þess að auki að kærunefnd útboðsmála veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum auk málskostnaðar úr hendi varnaraðila vegna kostnaðar við að hafa kæruna uppi.
Varnaraðili sendi kærunefnd útboðsmála bréf 28. apríl 2026 og upplýsti að ákveðið hefði verið að draga til baka ákvörðun um val tilboðs sem og ákvörðun um að hafna tilboði kæranda.
Jarðval sf. hefur ekki látið málið til sín taka.
Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir upplýsingum frá varnaraðila 29. apríl 2026 um hvort bjóðendum hefði verið tilkynnt um að ákvörðun um val tilboðs hefði verið dregin til baka. Varnaraðili svaraði erindinu þann sama dag og upplýsti um að bjóðendum hefði verið send slík tilkynning. Afrit af tilkynningum til bjóðenda fylgdi með svari varnaraðila.
I
Varnaraðili auglýsti í mars 2026 hið kærða útboð. Í grein 1.1.2 í útboðsgögnum kom fram almenn lýsing verksins, sem fælist í aðalatriðum í því að endurgera yfirborð gatna, hjólastíga og gangstétta og endurnýja vatnsmiðla varnaraðila í Drápuhlíð milli Reykjahlíðar og Lönguhlíðar og í Lönguhlíð, milli Eskitorgs og Miklubrautar. Helstu magntölur komu fram í sömu grein. Þá var tekið fram að verkinu skyldi lokið eigi síðar en 1. desember 2027, og að verkinu yrði skipt í fimm verkáfanga.
Í grein 1.1.7.4 í útboðsgögnum voru gerðar kröfur til tæknilegrar og faglegrar getu bjóðanda. Bjóðendur skyldu m.a. hafa reynslu af þremur sambærilegum verkum og voru tilteknar nokkrar kröfur í greininni sem sambærilegt þyrfti að uppfylla. Þar á meðal skyldi sambærilegt verk hafa numið 50% af tilboðsfjárhæð bjóðanda í hinu kærða útboði og skyldu bjóðendur leggja fram staðfestingu frá viðkomandi samningsaðilum um hvernig þessum kröfum væri fullnægt. Heimilt væri að taka tillit til reynslu eigenda, stjórnenda, lykilstarfsfólks og undirverktaka af verklegum framkvæmdum og leggja slíka reynslu að jöfnu við reynslu bjóðandans sjálfs.
Valforsendur komu fram í grein 1.3 í útboðsgögnum. Samkvæmt greininni yrði hagkvæmasta tilboði tekið. Verð myndi gilda 80% af lokaeinkunn og umhverfismál 20%. Umhverfismálum væri jafnframt skipt upp í þrjá liði, í fyrsta lagi vottað umhverfisstjórnunarkerfi sem myndi gilda 2%, notkun á umhverfisvænni orku sem myndi gilda 15% og loks umhverfisstaðal tækja sem myndi gilda 3%. Þyrftu fullnægjandi gögn að fylgja með tilboði til þess að fá stig fyrir þessar matskröfur.
Samkvæmt tilkynningu 9. apríl 2026 var tilboði Jarðvals sf. tekið, sem hefði fengið 80 stig fyrir verð og 18 stig fyrir umhverfisþætti, eða alls 98 stig. Tilboð kæranda uppfyllti ekki kröfur um reynslu og var því hafnað.
Kærandi byggir á því að það sé rangt að hann hafi ekki uppfyllt lágmarksskilyrði útboðsgagna um reynslu, enda sé hann einn reynslumesti verktaki landsins í verkum af því tagi sem hið kærða útboð lýtur að. Enginn vafi sé á um að tvö sambærilegra verka hans uppfylli kröfuna um 50% af tilboðsfjárhæð kæranda í hið kærða verk. Þá séu tvö önnur þeirra verka sem kærandi hafi tilgreint einnig yfir þeirri fjárhæð sé litið til endanlegrar upphæðar. Þau verk hafi farið fram úr áætlun samkvæmt samningi og endanleg fjárhæð hafi náð þessari kröfu hins kærða útboðs. Í útboðsgögnum hafi ekki verið tekið fram að miða ætti við samningsfjárhæð sambærilegra verka og því sé eðlilegt að miða við endanlega heildarupphæð verkanna, enda endurspegli það raunverulegt umfang þeirra. Kærandi byggir einnig á því að varnaraðila hafi verið óheimilt að líta ekki til reynslu lykilstjórnenda sinna í þessu sambandi. Heimild útboðsgagna sé mjög algeng og þekki varnaraðili engin dæmi þess að kaupandi nýti ekki slíka heimild.
Varnaraðili upplýsti í greinargerð sinni 28. apríl 2026 að misskilningur hefði orðið innanhús varðandi yfirferð á tilboðsgögnum. Yfirferð á hæfiskröfum hefði ekki verið lokið þegar val á tilboði hefði verið tilkynnt. Hefði því nú verið ákveðið að draga til baka val á tilboði Jarðvals sf. og að sama skapi draga til baka höfnun á tilboði kæranda. Muni varnaraðili í kjölfarið klára yfirferð á tilboðum sem bárust í hinu kærða útboði og taka afstöðu til þeirra á ný. Tilkynningar til bjóðenda í hinu kærða útboði um afturköllum val á tilboði eru dagsettar 29. apríl 2026.
Niðurstaða
Kæra málsins hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016. Í 1. mgr. 107. gr. laganna kemur fram að ef ákvörðun um val tilboðs er kærð innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. laganna sé gerð samnings óheimil þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar getur kærunefnd, hvort heldur að kröfu varnaraðila eða að eigin frumkvæði, ákveðið að aflétta banni við samningsgerð, en við slíka ákvörðun gilda ákvæði 110. gr. laganna eftir því sem við á. Í því felst að einungis á að viðhalda stöðvun hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögum um opinber innkaup eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.
Eins og að framan greinir hefur varnaraðili fallið frá ákvörðun sinni um að velja tilboð Jarðvals sf. í hinu kærða útboði, sbr. tilkynningar þess efnis sem send var bjóðendum í innkaupaferlinu 29. apríl 2026, og jafnframt ákvörðun um að hafna tilboði kæranda. Verður því að telja að kærandi hafi ekki lengur lögvarða hagsmuni samkvæmt 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016 af því að leyst verði úr kröfu hans um að ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Jarðvals sf. verði felld úr gildi. Þá liggur fyrir að varnaraðili hefur ekki lokið yfirferð á tilboðum samkvæmt sömu tilkynningu. Með vísan til þessa verður talið að skilyrði áframhaldandi stöðvunar samningsgerðar séu ekki fyrir hendi og verður því aflétt sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sem komst á með kæru í máli þessu, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.
Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar aðilar hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.
Ákvörðunarorð
Aflétt er sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar vegna útboðs varnaraðila, Veitna ohf., nr. VEV-2026-02 auðkennt „Drápuhlíð – Langahlíð – Endurgerð gatna og endurnýjun lagna.“
Reykjavík, 12. maí 2026
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir