08 júlí 2026
/
Uppfærður forgangslisti vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu
Forgangslisti vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB) hefur verið uppfærður og birtur á vef utanríkisráðuneytisins ásamt greinargerð þar sem finna má yfirlit yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið.
Nýr forgangslisti, sem gildir til ársins 2029, var samþykktur í ríkisstjórn 17. október 2025, að undangengnu samráði við utanríkismálanefnd Alþingis og opnu samráði við hagaðila í samráðsgátt stjórnvalda. Forgangslistinn er unninn samkvæmt endurskoðaðri aðferðafræði, sem miðar að því að greina málefni á vettvangi ESB með heildstæðum hætti og draga þannig fram á skipulegan hátt þau mál þar sem talið er að Ísland kunni að hafa sérstaka hagsmuni. Gert er ráð fyrir að listinn sé uppfærður reglulega og er hér um að ræða fyrstu uppfærsluna í samræmi við þá áætlun.
Þónokkur ný mál hafa verið tekin til umfjöllunar. Niðurstaða hagsmunamats er að tilefni sé til að bæta sex málum við á forgangslista á grundvelli sérstakra hagsmuna. Má þar meðal annars nefna löggjafartillögu um iðnaðarhraðal, nýtt regluverk á sviði fjarskipta og löggjafapakka um líftækniiðnað.
Næsta uppfærsla er áætluð í lok árs 2026.
Sjá uppfærðan forganglista hér og yfirlit yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið hér.
-----
Að jafnaði eru nokkur hundruð ESB gerðir sem varða Evrópska efnahagssvæðið teknar upp í EES-samninginn á hverju ári sem geta haft í för með sér breytingar á íslenskri löggjöf eða regluverki þegar þær eru innleiddar hér á landi. í langflestum tilfellum er samhljómur á milli hagsmuna Íslands og áforma ESB og/eða um er að ræða tæknilegar gerðir sem hafa takmörkuð áhrif hér á landi. Þó er ávallt mikilvægt að vera vel vakandi fyrir nýjum málum sem gætu snert hagsmuni Íslands og nýta þá möguleika sem Ísland hefur til að taka þátt í mótun löggjafar ESB. Á undanförnum árum hafa íslensk stjórnvöld lagt aukna áhersla á hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB í tengslum við aðild Íslands að EES-samningnum.
Utanríkisráðuneytið, sendiráð Íslands í Brussel, fagráðuneyti og stofnanir sinna hagsmunagæslu fyrir Íslands hönd í samráði við Alþingi og hagsmunaaðila.