09 júlí 2026

/

Nýju framkvæmdatímabili Uppbyggingarsjóðs EES í Portúgal hleypt af stokkunum

{image.Description}
Nýju framkvæmdatímabili Uppbyggingarsjóðs EES í Portúgal fyrir 2021–2028 var formlega hleypt af stokkunum í Lissabon í síðustu viku.

Framlög úr Uppbyggingarsjóði EES til Portúgal nema samtals 126,3 milljónum evra. Fjármagnið verður nýtt til verkefna á sviði blás hagkerfis, grænna umskipta, menningar og aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi og annarra verkefna sem stuðla að sjálfbærri þróun og auknu tvíhliða samstarfi milli Portúgal og EES-EFTA ríkjanna, Íslands, Liechtenstein og Noregs.  Tíu prósentum af framlaginu til Portúgal verður varið til sérstaks sjóðs fyrir borgaralegt samfélag (e. Civil Society).

Við athöfnina undirrituðu María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra Íslands gagnvart Portúgal, Hanna Brusletto, sendiherra Noregs í Portúgal og João Figueiredo, forstöðumaður landsmiðstöðvar Uppbyggingarsjóðsins í Portúgal, samkomulag um framkvæmd áætlananna.  Jafnframt voru kynntar helstu áherslur samstarfsins á komandi árum.

Markmið Uppbyggingarsjóðs EES er að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og að styrkja tvíhliða samstarf milli EES-EFTA-ríkjanna og fimmtán styrkþegaríkja í Mið- og Suður-Evrópu. Uppbyggingarsjóðurinn gegnir lykilhlutverki í tvíhliða samskiptum Íslands og Portúgal og hafa verkefni fjármögnuð af sjóðnum aukið samstarf ríkjanna m.a. á sviði grænnar orku, jafnréttis, umhverfismála og bláa hagkerfisins.

Uppbyggingarsjóður EES skapar tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki, stofnanir, frjáls félagasamtök og einstaklinga til að taka þátt í verkefnum með samstarfsaðilum í viðtökuríkjunum.