10 júlí 2026
/
Drög að reglugerð um gagnsæi og háttsemi á heildsöluorkumarkaði raforku til kynningar í Samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um framkvæmd ákvæða raforkulaga um gagnsæi og háttsemi á heildsöluorkumarkaði raforku.
Reglugerðardrögin fela í sér nánari útfærslu á ákvæðum 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003. Í drögunum er meðal annars fjallað um opinbera birtingu innherjaupplýsinga, skilyrði fyrir frestun birtingar innherjaupplýsinga, viðurkennda markaðsframkvæmd, gagnaskil til Raforkueftirlitsins og tilkynningar um grunsamleg viðskipti.
Reglugerðin er sett í kjölfar breytinga á raforkulögum með lögum nr. 45/2026. Með þeim voru lögfest ákvæði um bann við innherjasvikum, ólögmætri miðlun innherjaupplýsinga og markaðsmisnotkun í viðskiptum með heildsöluorkuafurðir. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að auknu gagnsæi á heildsöluorkumarkaði raforku og tryggja að Raforkueftirlitið hafi nauðsynlegar upplýsingar til að sinna eftirliti með markaðnum.
Í reglugerðardrögunum er einnig kveðið á um skyldur viðskiptavettvanga raforku og milligönguaðila í raforkuviðskiptum til að koma á fyrirkomulagi, kerfum og verkferlum sem miða að því að fyrirbyggja og greina markaðssvik. Í viðaukum við reglugerðina eru settar fram nánari reglur um mat á viðurkenndri markaðsframkvæmd og lágmarksupplýsingar sem skulu koma fram í gagnaskilum til Raforkueftirlitsins.
Óskað er eftir athugasemdum við reglugerðardrögin í samráðsgátt stjórnvalda eigi síðar en 19. ágúst 2026.
Drög að reglugerð um framkvæmd 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003