10 júlí 2026

/

Drög að viðmiðum fyrir ræstingaútboð ríkisins birt í samráðsgátt

{image.Description}

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt drög að viðmiðum fyrir útboð á ræstingaþjónustu hjá ríkisstofnunum í samráðsgátt stjórnvalda.

Markmið viðmiðanna er að stuðla að auknu gagnsæi, samræmi og gæðum við framkvæmd ræstingaútboða ríkisins. Þeim er jafnframt ætlað að stuðla að ábyrgum innkaupum þar sem tekið er mið af raunhæfum kostnaðarforsendum og kjarasamningsbundnum réttindum starfsfólks.

Viðmiðin skýra betur hvernig staðið skuli að undirbúningi útboða, framkvæmd þeirra og eftirfylgni á samningstíma. Þeim er ætlað að styðja við heilbrigða samkeppni og skapa skýrari umgjörð um kaup ríkisins á ræstingaþjónustu.

Drögin byggjast á víðtæku samráði við hagsmunaaðila, þar á meðal Eflingu, Starfsgreinasamband Íslands (SGS), fulltrúa verkkaupa og sérfræðinga á sviði opinberra innkaupa. Við undirbúning þeirra hefur jafnframt verið horft til reynslu bæði hérlendis og erlendis og horft til ábendinga starfshóps um æskilegar útboðsaðferðir ræstingaþjónustu. 

Viðmiðin byggjast á þremur meginstoðum:

  • uppmælingu stærri verkefna áður en útboð fara fram,
  • yfirlýsingu bjóðenda um að virða réttindi starfsfólks og uppfylla skyldur samkvæmt lögum og kjarasamningum,
  • skýrari viðmiðum um framkvæmd, eftirfylgni og viðbrögð við frávikum á samningstíma.

„Þessi viðmið eru liður í að bæta framkvæmd opinberra innkaupa. Þau eiga að auðvelda kaupendum að standa að vönduðum útboðum, stuðla að heilbrigðri samkeppni og taka mið af bæði gæðum þjónustunnar og réttindum starfsfólks,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Viðmiðin eru leiðbeinandi og verða nýtt við ræstingaútboð ríkisins. Umsagnir sem berast í samráðsgátt verða nýttar við áframhaldandi þróun þeirra og frekari umbætur á framkvæmd opinberra innkaupa á þessu sviði.

Drögin eru nú opin til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og eru allir áhugasamir hvattir til að kynna sér efnið og koma á framfæri athugasemdum.