20 júlí 2026

/

Mál nr. 1/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 25. júní 2026
í máli nr. 1/2026:
Ofar ehf.
gegn
Isavia ohf. og
Atendi ehf.

Lykilorð
Kærufrestur. Frávísun. Kröfu um málskostnað hafnað.

Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála vísaði frá kæru O þar sem kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup var liðinn.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 2. janúar 2026 kærði Ofar ehf. (hér eftir „kærandi“) lokað útboð Isavia ohf. (hér eftir „varnaraðili“) nr. U23036-3 auðkennt „LED skjáir fyrir Isavia ohf. og dótturfélög.“

Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila að hafna tilboði kæranda og taka tilboði Atendi ehf. Þess er einnig krafist að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda, nema afstaða kærunefndar til annarra krafna leiði til þess að það eigi ekki við. Loks er gerð krafa um að varnaraðila verði gert að greiða kostnað kæranda við að hafa kæruna uppi samkvæmt mati kærunefndar útboðsmála.

Varnaraðila og Atendi ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 21. janúar 2026 að öllum kröfum kæranda verði vísað frá eða hafnað.

Atendi ehf. krefst þess í greinargerð sinni 12. janúar 2026 að öllum kröfum kæranda verði hafnað en til vara að staðfest verði að ákvörðun varnaraðila um val tilboðs standi óbreytt. Þá krefst Atendi ehf. málskostnaðar úr hendi kæranda.

Kærandi lagði fram lokaathugasemdir sínar 5. febrúar 2026.

I

Hinn 8. október 2025 sendi varnaraðili boð um þátttöku í lokuðu útboði í gagnvirku innkaupaferli á 11 aðila, og óskaði eftir tilboði í einn LED skjá til notkunar á landgangi Keflavíkurflugvallar. Skjárinn yrði innfelldur í vegg á gangi þar sem talsverð umferð gangandi fólks sé og skyldi hann afhendast eigi síðar en 16 vikum eftir töku tilboðs og uppsetning skyldi ekki taka lengur en 2 vikur, sbr. grein 1 í útboðslýsingu. Í grein 2 í útboðslýsingu komu fram tæknilegar kröfur til skjásins í nokkrum liðum. Á meðal krafna var að skjárinn skyldi vera prófaður gagnvart eldvarnarstaðli EN13501-1 og hann skyldi skila niðurstöðum að lágmarki C, S2 og D0 eða sambærilegum niðurstöðum frá sambærilegum prófunarstöðlum á C, S og D. Þá kom fram í grein 3 í útboðslýsingu að boðinn skjár skyldi uppfylla allar lágmarkskröfur útboðslýsingar, sbr. grein 2.

Valforsendur komu fram í grein 3 þar sem tekið var fram að hagstæðasta tilboði yrði tekið á grundvelli besta hlutfalls milli verðs og gæða. Verð myndi gilda 40%, rafmagnsnotkun 25%, ábyrgð 15% og tækni 20%. Í grein 3.1.1 kom fram að stig fyrir verð yrðu gefin samkvæmt þeirri formúlu sem þar kæmi fram, og einnig að verð sem væri tvöfalt hærra eða meira en lægsta verð gæfi 0 stig.

Sex tilboð bárust. Tilboð kæranda fékk 63,0 stig og tilboð Atendi ehf. fékk 90,4 stig. Hinn 17. nóvember 2025 tilkynnti varnaraðili bjóðendum að ákveðið hefði verið að velja tilboð Atendi ehf., sem hefði verið metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðslýsingar og uppfyllti fram settar kröfur.

II

Kærandi byggir á því að óheimilt hafi verið að velja tilboð Atendi ehf. þar sem boðinn skjár þess uppfylli ekki tæknikröfur útboðslýsingar, þ.e. um prófun gagnvart eldvarnarstaðli. Samkvæmt veittum upplýsingum um tilboð Atendi ehf. hafi félagið boðið LED skjáinn „Unilumin W1.5 800 Nits – COB skjáeiningar. Controller: Nova Star MX 30 Led Display Controller.“ Sú prófunarskýrsla sem Atendi ehf. hafi lagt fram með tilboði sínu, til staðfestingar á að skjárinn væri prófaður gagnvart eldvarnarstaðli EN13501-1, varði hins vegar ekki þann skjá sem Atendi ehf. hafi boðið. Prófunarskýrslan sé fyrir vöruna UslimIII1.5 en Atendi ehf. hafi boðið UminiW1.5. Ekki sé um að ræða sömu vöru né sömu vörufjölskyldu. Því hafi varnaraðila borið að vísa tilboði Atendi ehf. frá.

Þá bendi kærandi á að samkvæmt opnunarskýrslu varnaraðila hafi tvö önnur fyrirtæki boðið sama skjá og Atendi ehf. og með vísan til framangreinds þá hafi varnaraðila einnig borið að vísa þeim tilboðum frá, að því gefnu að þau hafi ekki lagt fram önnur gögn en Atendi ehf. Þá hafi önnur tilboð verið ógild eða ekki staðist tæknilegar kröfur útboðslýsingar.

Kærandi hafi fengið 0 stig fyrir verð samkvæmt valforsendum útboðslýsingar, en kærandi telji að hann hefði því fengið töluvert hærri stig fyrir verð á skjánum ef tilboði Atendi ehf. hefði verið vísað frá. Því hafi kærandi átt raunhæfa möguleika á að vera með hagstæðasta tilboðið ef varnaraðili hefði vísað tilboði Atendi ehf. frá.

Í lokaathugasemdum sínum andmælir kærandi því að kærufrestur hafi verið liðinn við móttöku kæru og telur ljóst að kærufrestur hafi ekki getað byrjað að líða fyrr en 15. desember 2025, þegar kærandi hafi fengið upplýsingar frá varnaraðila um tilboð Atendi ehf. Kærandi gat þannig ekki vitað né mátti vita um að tilboð Atendi ehf. hafi ekki uppfyllt umræddar tæknikröfur útboðslýsingar fyrr en við afhendingu upplýsinganna um tilboð Atendi ehf., þ. á m. prófunarskýrslu fyrir búnað Atendi ehf. Í þessu sambandi bendir kærandi á dóm Hæstaréttar í máli nr. 366/2013 og úrskurð kærunefndar útboðsmála máli nr. 20/2023. Þá sé alveg skýrt að mati kæranda að tilvísun viðskiptavinar prófunarstofu til þess, að aðrar vörur séu sambærilegar þeim búnaði sem prófaður sé, fullnægi ekki skilyrðum útboðslýsingar, enda liggi fyrir að prófunarstofan leggi ekkert mat á aðrar vörur sem viðskiptavinur vísi til. Kærandi andmælir einnig sjónarmiðum varnaraðila og Atendi ehf. að um sé að ræða viðurkennda framkvæmd í þessum geira. Það sé einnig ósannað að hinn boðni búnaður tilheyri sömu vörufjölskyldu og sú vara sem prófunarskýrslan varði. Töluverður munur sé að þessum vörum sem geti haft áhrif á brunaþol eða brunaeiginleika þeirra, t.d. sé um að ræða mismunandi LED tækni.

III

Varnaraðili bendir á að ágreiningur málsins lúti að því hvort brunaprófunarskýrsla sem Atendi ehf. hafi lagt fram með tilboði sínu uppfylli kröfur útboðsgagna. Óháð orðalagi í kærunni þá varðar hún í grunninn ákvörðun varnaraðila um val á tilboði, sem tilkynnt hafi verið 17. nóvember 2025. Samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 skal í slíkum tilvikum miða upphaf kærufrests við birtingu tilkynningar um val á tilboði. Kærufrestur sé 20 dagar og honum hafi lokið 8. desember 2025. Engin ástæða sé til þess að miða kærufrest í þessu máli við síðara tímamark, en kæra málsins hafi borist kærunefnd útboðsmála 2. janúar 2026 og hafi kærufrestur því verið liðinn. Í þessu sambandi vísar varnaraðili til úrskurðar kærunefndar útboðsmála í máli nr. 8/2022, og bendir að auki á að ákvæði 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 geri ekki kröfu um að öll gögn liggi fyrir áður en kærufrestur byrji að líða. Fresturinn byrji að líða um leið og viðkomandi aðili hafi fengið að vita eða hafi mátt vita um ákvörðunina sem slíka, og sú staðreynd að kærandi hafi óskað eftir upplýsingum í kjölfar tilkynningar varnaraðila leiði ekki til þess að kærufrestur byrji að líða við síðara tímamark.

Að auki bendir varnaraðili á að engin heimild sé til þess að fella bindandi samning úr gildi, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016, en bindandi samningur hafi komist á milli varnaraðila og Atendi ehf. 25. nóvember 2025.

Þá vísar varnaraðili til þess að Atendi ehf. hafi lagt fram brunaprófunarskýrslu í samræmi við fyrirmæli útboðslýsingar. Í skýrslunni hafi komið fram að einn skjár hafi verið prófaður og fullyrt sé í skýrslunni af framleiðanda að sú prófun eigi einnig við aðrar vörulínur, þ.m.t. þá vöru sem Atendi ehf. hafi boðið í hinu kærða útboði. Niðurstaða prófunarinnar hafi sýnt fram að vara Atendi ehf. hafi verið umfram þær lágmarkskröfur sem gerðar hafi verið í útboðsgögnum, auk þess sem félagið hafi staðist allar aðrar lágmarkskröfur útboðsgagna. Varnaraðili bendir á að það leiði af 3. mgr. 61. gr. reglugerðar nr. 360/2017 að kröfur til brunaprófunarskýrslna verði að vera túlkaðar með þeim hætti að sambærileg sönnunargögn, sem uppfylli efnislegar kröfur útboðsgagna, séu metin jafngild. Sú framkvæmd að byggja á prófun á einni vöru innan vörulínu, studdri yfirlýsingu framleiðanda um gildissvið prófunarinnar, sé í samræmi við viðurkenndar venjur og tryggi jafnræði bjóðenda. Þá leiði af 63. gr. reglugerðar nr. 360/2017 að ekki sé hægt að gera kröfu um að hver einstök vara eða hvert vörunúmer sé prófað sérstaklega, enda liggi fyrir fullnægjandi sönnunargögn um að kröfur útboðsgagna séu uppfylltar. Ekki sé hægt að ætlast til þess að opinber kaupandi sannreyni tæknilegt gildi rannsóknarskýrslna eða prófunarfullyrðingar um boðnar vörur. Auk þess hafi varnaraðili ekki haft nokkrar forsendur til þess að draga brunavarnaskýrslur og önnur gögn frá viðurkenndum vottunarstofum í efa.

Atendi ehf. bendir á að kærandi byggi alfarið á þeirri málsástæðu að brunaprófunarskýrslan, sem félagið hafi lagt fram með tilboði sínu, sé ekki fyrir nákvæmlega sömu vörugerð og boðin hafi verið. Atendi ehf. vísar til þess að skýrslan sé frá viðurkenndri prófunarstofu og hún hafi sýnt betri niðurstöðu en krafist hafi verið í útboðslýsingu. Í skýrslunni hafi verið tekið fram að prófunin ætti við um aðrar vörur í sömu vörulínu, sem endurspegli viðurkennda og almenna framkvæmd í þessari grein þar sem prófanir séu framkvæmdar á dæmigerðu sýnishorni vörufjölskyldu og síðan yfirfærðar á undirgerðir sem séu byggingarefnafræðilega sambærilegar. Útboðsgögn hafi ekki kveðið á um að prófun skyldi vera framkvæmd á nákvæmlega sama vörunúmeri og boðið hafi verið, heldur að boðinn búnaður skyldi uppfylla kröfuna um brunaflokkun samkvæmt umræddum staðli. Það væri enda óraunhæft að krefjast sérprófunar fyrir hverja undirgerð innan vörufjölskyldu, auk þess sem það myndi leiða til óhóflegs kostnaðar og skertrar samkeppni.

IV

Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 skal kæra borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi um eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Ákvæðið er efnislega óbreytt frá 94. gr. eldri laga nr. 84/2007 um opinber innkaup og var tekið fram í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi því sem varð að lögunum að í opinberum innkaupum stæðu sérstök rök til þess að fyrirtæki brygðust skjótt við ætluðum brotum, ef þau óskuðu eftir því að úrræðum kærunefndar útboðsmála yrði beitt. Væri enda sérlega mikilvægt að ekki væri fyrir hendi óvissa um gildi tiltekinna ákvarðana, jafnvel þótt vera kynni að ákvarðanir væru ólögmætar.

Kröfur kæranda lúta að öllu leyti að þeirri ákvörðun varnaraðila að velja tilboð Atendi ehf., en tilkynning varnaraðila um val tilboðs var send bjóðendum 17. nóvember 2025. Kæra málsins barst 2. janúar 2026 og voru þá liðnir fleiri en 20 dagar frá því kærandi fékk vitneskju um val tilboðs. Kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 var því liðinn þegar kæra barst kærunefnd útboðsmála. Af þessum sökum er óhjákvæmilegt að vísa kærunni frá kærunefnd útboðsmála.

Atendi ehf. gerir kröfu um greiðslu málskostnaðar úr hendi kæranda. Í lögum nr. 120/2016 er ekki mælt fyrir um heimild til handa kærunefnd útboðsmála til að úrskurða varnaraðila eða hagsmunaaðila málskostnað úr hendi kæranda, sbr. úrskurð nefndarinnar 7. mars 2022 í máli nr. 47/2021. Þessari kröfu Atendi ehf. er því hafnað.

Með vísan til framangreindra málsúrslita þykir rétt að málskostnaður falli niður.

Úrskurðarorð

Kæru kæranda, Ofar ehf., í máli þessu er vísað frá kærunefnd útboðsmála.

Kröfu Atendi ehf., um greiðslu málskostnaðar úr hendi kæranda, er hafnað.

Málskostnaður fellur niður.


Reykjavík, 25. júní 2026


Reimar Pétursson

Kristín Haraldsdóttir

Hersir Sigurgeirsson