21 júlí 2026

/

Endurskoðuð drög að nýjum heildarlögum um barnavernd kynnt til umsagnar

{image.Description}
Hari

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt að nýju í Samráðsgátt stjórnvalda drög að nýjum heildarlögum um barnavernd. Drögin hafa verið endurskoðuð með hliðsjón af áliti velferðarnefndar Alþingis og þeim breytingum sem nefndin lagði til við meðferð frumvarpsins á Alþingi.

Við endurskoðunina hefur meðal annars verið lögð sérstök áhersla á að styrkja eftirlit með börnum sem vistuð eru utan heimilis, tryggja virkari þátttöku barna og skýrari upplýsingagjöf til þeirra og efla réttaröryggi við meðferð barnaverndarmála. Þá hafa ákvæði um ábyrgð og verkaskiptingu stjórnvalda, eftirfylgd með vistun barna og skilyrði fyrir beitingu þvingunar verið skýrð nánar.

Frumvarpið byggist á stefnumótunarvinnu stjórnvalda undanfarinna ára og víðtæku samráði við fagfólk, sveitarfélög, hagaðila og börn. Markmið þess er að styrkja sjálfstæð réttindi barna, stuðla að barnvænni málsmeðferð og bæta samstarf þeirra aðila sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.

Með frumvarpinu er meðal annars gert ráð fyrir innleiðingu samkomulags ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda, sem undirritað var 19. mars 2025. Samkomulaginu er ætlað að skýra ábyrgð ríkis og sveitarfélaga og styrkja uppbyggingu sérhæfðra búsetu- og þjónustuúrræða fyrir þau börn sem hafa flóknustu stuðningsþarfirnar.

Lagt er til að nýtt barnaverndarráð á vegum ríkisins taki til starfa í stað umdæmisráða barnaverndar og sérfræðingateymis vegna barna með fjölþættan vanda. Ráðinu verði falið ákvörðunarvald um tilteknar ráðstafanir samkvæmt lögunum og að leggja mat á hvort vistun barns utan heimilis vegna fjölþættra stuðningsþarfa sé barninu fyrir bestu.

Réttindi barna við meðferð barnaverndarmála eru styrkt, meðal annars með aukinni áherslu á rétt þeirra til upplýsinga, þátttöku og talsmanns. Einnig er lagt til að réttur barna til heilbrigðisþjónustu og menntunar meðan á vistun á vegum barnaverndar stendur verði sérstaklega tryggður í lögum.

Í frumvarpsdrögunum er jafnframt fjallað ítarlega um eftirlit með aðbúnaði og líðan barna sem vistuð eru utan heimilis. Gert er ráð fyrir tíðari eftirlitsheimsóknum, heimild til óboðaðra heimsókna og að börn fái tækifæri til að ræða einslega við starfsmann barnaverndarþjónustu við hlutlausar aðstæður. Þá er lögð áhersla á stuðning og eftirfylgd þegar vistun lýkur.

Einnig er lagt til að skýrari reglur gildi um beitingu þvingunar gagnvart börnum í vistunarúrræðum á ábyrgð barnaverndaryfirvalda. Markmiðið er að tryggja skýra lagaumgjörð, aukinn fyrirsjáanleika og vernd réttinda, öryggis og mannlegrar reisnar barna.

Frumvarpsdrögin fela jafnframt í sér ýmsar aðrar breytingar, meðal annars til að skýra gildissvið barnaverndarlaga gagnvart börnum sem dvelja hér á landi án forsjáraðila.

Ráðuneytið hvetur hagaðila, fagfólk og aðra áhugasama um málefni barna til að kynna sér endurskoðuð frumvarpsdrög og senda inn umsögn í Samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til og með 4. ágúst 2026.