21 júlí 2026
/
Ný stjórn Landspítala skipuð
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað stjórn Landspítala til næstu tveggja ára samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Formaður nýrrar stjórnar er Regína Ásvaldsdóttir og varaformaður Birna Einarsdóttir. Aðrir stjórnarmenn eru Anna Sigríður Íslind, Thor Aspelund og Guðjón Hauksson. Varamenn í stjórn eru Óskar Reykdalsson og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir. Ráðherra skipar einnig tvo áheyrnarfulltrúa starfsmanna spítalans. Þeir eru Signý Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur og Theodór Skúli Sigurðsson svæfingalæknir. Varamaður er Steinunn Pálsdóttir sjúkraþjálfari.
Stjórn Landspítala skal í samráði við forstjóra marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra og lögbundið hlutverk stofnunarinnar. Þá er hlutverk hennar einnig að yfirfara árlega starfsáætlun og ársáætlun samkvæmt lögum um opinber fjármál, leggja sjálfstætt mat á áætlanirnar og markmið og mælikvarða sem þar eru sett fram og gera ráðherra grein fyrir mati sínu.
„Þetta er öflugur hópur fólks sem saman býr yfir víðtækri þekkingu, menntun og reynslu á breiðu sviði í samræmi við lagaákvæðið um stjórn Landspítala. Þar er kveðið á um að í stjórninni sitji einstaklingar með þekkingu á rekstri og áætlanagerð, á heilbrigðisþjónustu og vísindarannsóknum á heilbrigðissviði og menntun heilbrigðisstétta og á opinberri stjórnsýslu og reglum stjórnsýsluréttar. Hér fást einnig mikilvægar tengingar við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, öldrunarþjónustuna og við Sjúkrahúsið á Akureyri en mér finnst afar mikilvægt að efla tengsl og samstarf þess við Landspítala. Ég vænti mikils af nýrri stjórn og óska henni velfarnaðar“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
Regína Ásvaldsdóttir er félagsráðgjafi að mennt með meistarapróf í rekstrarhagfræði með áherslu á breytingar og nýsköpun frá háskólanum í Aberdeen, Skotlandi. Regína hefur langa og farsæla stjórnunarreynslu, var bæjarstjóri í Mosfellsbæ árin 2022-2026 og þar áður stýrði hún velferðarsviði Reykjavíkurborgar en sviðið er með á annað hundrað starfsstöðvar og 3.500 starfsmenn. Þá hefur hún starfað sem bæjarstjóri á Akranesi, sem skrifstofustjóri og staðgengill borgarstjóra og framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð. Regína er nýráðin verkefnastjóri verkefnisins Gott að eldast sem byggir aðgerðaáætlun Alþingis um þjónustu við eldra fólk. Hún er jafnframt varaborgarfulltrúi í Reykjavík.
Birna Einarsdóttir starfaði lengst af í fjármálageiranum, síðast sem bankastjóri Íslandsbanka 2008-2023. Áður starfaði hún hjá Royal Bank of Scotland. Auk ráðgjafastarfa situr Birna í stjórnum nokkurra fyrirtækja meðal annars Iceland Seafood, Skel og Mílu. Hún er viðskipta- og hagfræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá Edinborgarháskóla.
Anna Sigríður Íslind er doktor í tölvunarfræði og prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Hún er sérfræðingur í hönnun, þróun og notkun stafrænna heilbrigðistæknilausna og gervigreindar í heilbrigðisþjónustu. Anna Sigríður hefur er afkastamikil vísindakona, hefur stjórnað eða komið að stórum rannsóknum á sínu sviði og birt alls 109 ritrýndar greinar þar af 55 tímaritsgreinar, 47 ráðstefnugreinar og 7 bókakafla. Samstarf hennar við heilbrigðisgeirann hefur haft áhrif jafnt innan sem utan Háskólans í Reykjavík, m.a. með nýju sérnámi fyrir heilbrigðisstarfsfólk á Landspítalanum þar sem gervigreind og heilbrigðisvísindi mætast.
Thor Aspelund er doktor í líftölfræði og prófessor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum hjá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað sem tölfræðingur hjá Hjartavernd þar sem hann kom meðal annars að hönnun áhættureiknis fyrir hjartasjúkdóma, sykursýki og aðra sjúkdóma. Thor hefur verið virkur rannsakandi á sviði forvarna og lýðheilsu, hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki, krabbameina, öldrunar, heilsu og áfallasögu kvenna og covid-19. Hann hefur birt á fimmta hundrað vísindagreina og er í hópi þeirra fræðimanna við Háskóla Íslands frá upphafi sem flestar vísindagreinar hafa birt.
Guðjón Hauksson tók við embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri 1. júní sl. en var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá árinu 2017. Guðjón hefur víðtæka menntun og starfsreynslu á sviði heilbrigðismála og heilbrigðisþjónustu. Hann lauk B.S. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands (HÍ) árið 2006, meistaragráðu frá Boston University School of Public Health á sviði rannsókna tengdum heilbrigðisþjónustu árið 2012 og meistaragráðu í heilsuhagfræði frá HÍ árið 2015. Á árum áður starfaði Guðjón m.a. sem sérfræðingur hjá Lyfjagreiðslunefnd, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu og sem verkefnastjóri og hjúkrunarfræðingur á Landspítala.
Óskar Reykdalsson er sérfræðingur í heimilislækningum með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu. Hann hefur fjölbreytta reynslu og víðtæka þekkingu á íslensku heilbrigðiskerfi. Hann hefur starfað sem læknir og stjórnandi á mismunandi sviðum heilbrigðisþjónustunnar á landsbyggðinni, Landsspítalanum, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og í Velferðarráðuneytinu. Þá hefur hann enn fremur unnið að fjölda verkefna tengdum rekstri og stefnumótun innan heilbrigðiskerfisins. Óskar var forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins árin 2019 – 2023 og starfar nú sem heilsugæslulæknir í heilsugæslunni Hlíðum.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir er félagsráðgjafi að mennt og með meistara- og doktorsgráðu í stjórnsýslufræðum frá London School of Economics and Political Science. Hún er prófessor emeritus í opinberri stjórnsýslu við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands þar sem hún hefur starfað við rannsóknir og kennslu frá árinu 2010. Margar af hennar viðamestu rannsóknum hafa verið á vettvangi heilbrigðismála og þá einkum um stefnumótun og innleiðingu stefnumótunar á því sviði. Má þar sérstaklega geta um doktorsrannsóknir hennar um sameiningu sjúkrahúsa, rannsóknar á þróun og stöðu heilsugæsluþjónustu hér á landi og rannsókn á áhrifum saksóknar og ákæru á hendur heilbrigðisstarfsmanni vegna óvænts atviks á gjörgæsludeild Landspítala árið 2012. Sigurbjörg starfaði um 10 ára skeið sem yfirmaður öldrunarmála hjá Reykjavíkurborgar. Hún hefur á starfsferli sínum komið að margvíslegum verkefnum á sviði stefnumótunar og ráðgjafar, m.a. hjá OECD, Alþjóðabankanum og fyrir hérlend og erlend stjórnvöld og alþjóðastofnanir.