22 júlí 2026

/

Drög að leiðbeiningum um viðskipti á heildsöluorkumarkaði til samráðs

{image.Description}

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda fyrstu fjóra kafla draga að leiðbeiningum Raforkueftirlitsins um framkvæmd ákvæða raforkulaga um viðskipti á heildsöluorkumarkaði raforku.

Leiðbeiningunum er ætlað að stuðla að samræmdum skilningi á þeim skyldum sem leiða af raforkulögum og skýra hvernig Raforkueftirlitið hyggst túlka og beita viðkomandi ákvæðum við eftirlit með markaðnum. Við gerð þeirra hefur meðal annars verið stuðst við leiðbeiningar ACER um framkvæmd REMIT-regluverksins, að teknu tilliti til íslenskrar löggjafar og sérstöðu íslenska raforkumarkaðarins.

Í þessum áfanga er fjallað um skilgreiningar og gildissvið V. kafla raforkulaga, innherjaupplýsingar, skyldu markaðsaðila til að birta innherjaupplýsingar opinberlega og bann við innherjasvikum og ólögmætri miðlun innherjaupplýsinga.

Í leiðbeiningunum er meðal annars gerð grein fyrir afmörkun heildsöluorkumarkaðar og heildsöluorkuafurða, hvaða aðilar falla undir viðkomandi ákvæði raforkulaga og hvaða upplýsingar geti talist innherjaupplýsingar. Þá er fjallað um mat á því hvort upplýsingar séu nægjanlega tilgreindar og líklegar til að hafa marktæk áhrif á verð, kröfur um skilvirka og tímanlega birtingu innherjaupplýsinga og skilyrði fyrir frestun birtingar.

Leiðbeiningarnar fela ekki í sér sjálfstæðar skyldur umfram þær sem leiða af raforkulögum og stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra. Þeim er ætlað að veita markaðsaðilum og öðrum sem reglurnar varða nánari leiðsögn um túlkun og framkvæmd gildandi reglna. Frekari kaflar leiðbeininganna verða birtir til samráðs í áföngum eftir því sem vinnu við þá miðar áfram.

Óskað er eftir athugasemdum við efni og framsetningu leiðbeininganna í Samráðsgátt stjórnvalda eigi síðar en 4. september 2026.

Samráð um drög að leiðbeiningum um viðskipti á heildsöluorkumarkaði