22 júlí 2026
/
Kosning utan kjörfundar í Bandaríkjunum vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB
ATHUGIÐ: Ákveðið hefur verið að fjölga kjördögum í fastanefnd Íslands í New York! Sjá dagsetningar hér fyrir neðan.
Sendiráð Íslands í Washington vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á Íslandi 29. ágúst n.k.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst mánudaginn 27. júlí
Í sendiráði Íslands í Washington D.C. er hægt að greiða atkvæði a milli kl. 11:00 og 16:00 dagana 31. júlí, 5. Ágúst, 7. ágúst og 14. ágúst.
- Bóka skal tíma fyrirfram á þessari síðu: Utankjörfundarkosning Washington
Á skrifstofu fastanefndar Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York er hægt að greiða atkvæði:
10. ágúst á milli kl. 09:30 - 16:00
17. ágúst á milli kl. 12:00 - 15:45
18. ágúst á milli kl. 09:30 - 13:30
- Bóka skal tíma fyrirfram á þessari síðu: Utankjörfundarkosning New York
Hér má finna lista yfir nákvæmar upplýsingar um staðsetningar, opnunartíma og fyrirkomulag kosninga erlendis hjá sendiskrifstofum Íslands og hjá kjörræðismönnum.
Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.
Athugið að þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands þurfa að kynna sér vel opnunartíma og hafa samband við kjörræðismenn fyrirfram sé óskað eftir því.
Íslenskir ríkisborgarar sem eru með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag hafa rétt til að greiða atkvæði.
Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.
Kjörskrá verður birt 24. júlí. Eftir þann dag geta kjósendur flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á kosning.is
Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjósandi getur beðið kjörstjóra um að setja atkvæði í almennan póst, en það tryggir ekki að atkvæðið berist í tæka tíð. Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
Nánari upplýsingar:
- Sjá vefsíðu landskjörstjórnar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu
- Sjá upplýsingasíðu utanríkisráðuneytisins um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið