22 júlí 2026
/
Kosning utan kjörfundar í Svíþjóð vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi vekur athygli á utankjörfundaatkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á Íslandi 29. Ágúst 2026.
Utankjörfundaatkvæðagreiðsla hefst hjá sendiráðinu og kjörræðismönnum Íslands mánudaginn 27. júlí 2026.
Sendiráðið vekur athygli á eftirfarandi:
- Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað.
- Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila.
- Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í almennan póst. en það tryggir ekki að atkvæðið berist í tæka tíð.
- Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
- Sendiráðið hvetur kjósendur til að gera ráð fyrir hugsanlegum töfum á póstsendingum og senda atkvæði sín tímanlega. Samkvæmt upplýsingum hjá Postnord tekur sending almennra bréf Svíþjóð til Íslands að lágmarki 3-5 virka daga.
- Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.
- Kjörskrá verður birt 24. júlí. Eftir þann dag geta kjósendur flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
- Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.
Hér má sjá lista yfir opnunartíma, staðsetningu og fyrirkomulag kosninga utan kjörfundar hjá sendiskrifstofum Íslands og hjá körræðismönnum.
Opnunartímar kosninga utan kjörfundar í Svíþjóð:
Stokkhólmur
Hægt verður að kjósa í sendiráðinu frá og með 27. júlí á afgreiðslutímum sendiráðsins, alla virka daga frá kl. 09:30-15:30. Ekki þarf að bóka tíma eða boða komu.
Sérstakur auka opnunartími verður í sendiráðinu á eftirfarandi dögum:
- Laugardagurinn 15. ágúst – frá kl. 11:00-15:00.
- Dagana 17.- 20. ágúst: Framlengdur opnunartími til kl. 18:00.
Athugið að sendiráðið verður lokað 3. ágúst.
Sendiráðið er staðsett að Kommendörsgatan 35, 114 58 Stokkhólmi, sími +46 8 442 8300, netfang: [email protected].
Gautaborg
Kjörræðismaður Íslands í Gautaborg tekur á móti kjósendum í safnaðarheimilinu við Västra Frölunda kirkju á Frölunda Kyrkogata 2, Gautaborg á eftirfarandi tímum:
- Föstudaginn 14. ágúst frá kl. 16:00-19:00.
- Sunnudaginn 16. ágúst frá kl. 15:00-19:00.
- Miðvikudaginn 19. ágúst frá kl. 16:00-20:00
Ekki þarf að boða komu á þessum tímum. Hægt er að hafa samband við Christinu Nilroth, aðalræðismann Íslands í Gautaborg, í síma +46 70 570 40 58 eða með tölvupósti; [email protected].
Malmö
Kjörræðismaður Íslands í Malmö tekur á móti kjósendum hjá Kreativa gymnasiet, Tuborgsgatan 2, Malmö á eftirfarandi tímum:
- Þriðjudaginn 11. ágúst frá kl. 12:00-18:00
- Fimmtudaginn 13. ágúst frá kl. 15:00-18:00
- Laugardaginn 15. ágúst frá kl. 11:00-14:00
Ekki þarf að boða komu á þessum tímum. Hægt er að hafa samband við Per Bergström, ræðismann Íslands í Malmö, í síma +46 709 32 1096 eða með tölvupósti; [email protected].
Lund
Kjörræðismaður Íslands í Lund tekur á móti kjósendum hjá Sydö Property, Bytaregatan 2, Lund á eftirfarandi tímum:
- Miðvikudaginn 12. ágúst kl. 12:00-18:00.
- Laugardaginn 15. ágúst kl. 12:00-15:00.
- Miðvikudaginn 19. ágúst frá kl. 17:00-20:00.
Ekki þarf að boða komu fyrir fram á þessum tímum. Hægt er að hafa samband við Mikael Lannerheim, ræðismann Íslands í Lund, í síma +46 70 509 20 63 eða með tölvupósti; [email protected].
Karlstad/Hammarö
Tekið verður á móti kjósendum eftir samkomulagi á Bärstavägen 22, Hammarö eftir 18. ágúst. Hafa skal samband við kjörræðismann til að bóka tíma:
Madeleine Ströje Wilkens, ræðismaður Íslands í Karlstad/Hammarö.
Sími: +46 73 59 000 44
Netfang: [email protected]
Nánari upplýsingar um utankjörfundaatkvæðagreiðslu má nálgast á www.kosning.is.