22 júlí 2026
/
Kosning utan kjörfundar í sendiráðinu í París vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB
Sendiráð Íslands í París vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á Íslandi 29. ágúst nk.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hjá sendiráðum og kjörræðismönnum Íslands mánudaginn 27. júlí.
Í sendiráðinu í París er hægt að greiða atkvæði alla virka daga frá 09:30-15:30.
Séropnun:
- Laugardaginn 1. ágúst kl. 10:00-13:00. Vinsamlegast athugið að til að kjósa þann dag þarf að staðfesta komu með því að senda póst til [email protected]
- Miðvikudaginn 5. ágúst verður opnunartími framlengdur til kl. 19:00
Hér má finna nákvæmar upplýsingar um kjörræðismenn, staðsetningar, opnunartíma og fyrirkomulag kosninga erlendis.
Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.
Athugið að þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands þurfa að kynna sér vel opnunartíma og hafa samband við kjörræðismenn fyrirfram sé óskað eftir því.
Íslenskir ríkisborgarar sem eru með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag hafa rétt til að greiða atkvæði.
Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.
Kjörskrá verður birt 24. júlí. Eftir þann dag geta kjósendur flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á vefsíðunni kosning.is.
Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjósandi getur beðið kjörstjóra um að setja atkvæði í almennan póst, en það tryggir ekki að atkvæðið berist í tæka tíð. Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
Nánari upplýsingar:
- Sjá vefsíðu Landskjörstjórnar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
- Sjá upplýsingasíðu utanríkisráðuneytisins um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.