22 júlí 2026

/

Utankjörfundaratkvæðagreisla í sendiráðinu í Berlín vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst nk.

{image.Description}

Sendiráð Íslands í Berlín vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á Íslandi 29. ágúst n.k.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hjá sendiráðinu og kjörræðismönnum Íslands mánudaginn 27. júlí.

Í sendiráðinu í Berlín er hægt að greiða atkvæði á eftirfarandi dögum:

Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00.
Föstudaga frá kl. 9:00-12:00.

Bóka skal tíma fyrirfram á þessari síðu: Kosning í sendiráðinu í Berlín

Athugið að lokað verður mánudaginn 3. ágúst vegna frídags verslunarmanna.

Kosning í sendiráðinu í Berlín fer fram í sameiginlegri ræðisdeild (vegabréfadeild) norrænu sendiráðanna „Konsularabteilung“ á horni Rauchstrasse og Klingelhöferstrasse. Sjá nánari staðsetningu hér. Gera þarf ráð fyrir örstuttri öryggisleit.

Sérstakur opnunartími í sendiráðinu í Berlín fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu verður eftirfarandi daga:

Sunnudaginn 9. ágúst frá kl. 11:00-16:00.
Sunnudaginn 
23. ágúst frá kl. 12:00-15:00.

Ekki er nauðsynlegt að bóka tíma í hana og fer hún fram í fundarsalnum á efstu hæðinni í Felleshus – Nordische Botschaften, sameiginlegu húsnæði norrænu sendiráðanna í Berlín. Gera þarf ráð fyrir örstuttri öryggisleit.

Hér má finna nákvæmar upplýsingar um kjörræðismenn, staðsetningar, opnunartíma og fyrirkomulag kosninga erlendis.

Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá. 


Athugið að þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands þurfa að kynna sér vel opnunartíma og hafa samband við kjörræðismenn fyrirfram sé óskað eftir því. 

Íslenskir ríkisborgarar sem eru með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag hafa rétt til að greiða atkvæði. 

Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.

Kjörskrá verður birt 24. júlí. Eftir þann dag geta kjósendur flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár
 
Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á kosning.is  
 
Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í almennan póst. Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.