23 júlí 2026
/
Kosning utan kjörfundar á Spáni vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB
Sendiráð Íslands í Madríd vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem fer fram á Íslandi 29. ágúst nk.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hjá sendiráðinu og kjörræðismönnum Íslands mánudaginn 27. júlí og lýkur föstudaginn 28. ágúst.
Í sendiráðinu í Madríd er hægt að greiða atkvæði a milli kl. 10:00 og 15:00 alla virka daga.
- Panta þarf tíma í gegnum bókunarsíðu sendiráðsins.
Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.
Athugið að þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands þurfa að kynna sér vel opnunartíma og hafa samband við kjörræðismenn fyrirfram sé óskað eftir því.
Íslenskir ríkisborgarar sem eru með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag hafa rétt til að greiða atkvæði. Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.
Kjörskrá verður birt 24. júlí. Kjósendur geta því flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á kosning.is
Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í almennan póst. Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
Hægt verður að kjósa á Spáni eftir því sem hér kemur fram:
Barcelona
[email protected] eða í síma +34 (932) 179 142
Hægt er að kjósa eftirfarandi daga í Barcelona:
- 13. ágúst á skrifstofu ræðismanns eftir samkomulagi. Hafið samband við ræðismann (sjá uppl. fyrir ofan).
- 18. ágúst á skrifstofu ræðismanns. Ekki þarf að panta tíma sérstaklega. Tímasetning verður auglýst síðar.
Bilbao
[email protected] eða í síma +34 (609) 471 567
Hægt verður að kjósa hjá ræðismanni í Bilbao samkvæmt samkomulagi í ágúst. Hafið samband við ræðismann.
Gran Canaria
Hægt verður að kjósa hjá kjörræðismanni eftir samkomulagi. Hafið samband: [email protected] eða í síma +34 (928) 365 870
Þar að auki verður sérstakur kjördagur á vegum sendiráðsins þann 19. ágúst milli kl. 10:00 - 16:00 á skrifstofu KROPECK ABOGADOS. Ekki þarf að panta tíma fyrirfram.
Heimilisfang: KROPECK ABOGADOS, Avenida de Tirajana 37, edificio Mercurio Torre I ( á 7. hæð C ), 35100 Playa del Ingles.
Madríd
Hægt verður að kjósa alla virka daga kl. 10:00 og 15:00 í sendiráði Íslands í Madríd.
Panta þarf tíma fyrirfram í gegnum bókunarsíðu sendiráðsins.
Málaga
Hægt verður að kjósa þann 11. ágúst milli kl. 10:00 - 16:00 á AC Hotel Málaga Palacio.
Orihuela Costa
[email protected] eða í síma +354 840 8908
Hægt verður að kjósa 9. og 10. ágúst milli kl. 10 - 16:30 á Hotel Golf Campoamor.
Palma de Mallorca
[email protected] eða í síma +34 (971) 716 045
Hægt verður að kjósa hjá ræðismanni samkvæmt samkomulagi í ágúst. Hafið samband.
Tenerife
Hægt verður að kjósa þann 20. ágúst milli kl. 10:00 - 16:00 á skrifstofu Andreas & Partners
Heimilisfang: Andreas & Partners, Calle Roques del Salmor 1, 38679, Costa Adeje
Vigo/Pontevedra
[email protected] eða í síma +34 (604) 020 568
Hægt verður að kjósa hjá ræðismanni samkvæmt samkomulagi í ágúst. Hafið samband.