23 júlí 2026
/
Kosning utan kjörfundar í Bretlandi vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið
Sendiráðið Íslands í London vekur athygli á atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sem fram fer 29. ágúst 2026.
Utankjörfundaratkvæðagreiðslan hefst mánudaginn 27. júlí og stendur til 28. ágúst.
Hægt verður að kjósa í sendiráðinu alla virka daga milli klukkan 10:00 til 16:00, en bóka þarf tíma á bókunarsíðu sendiráðsins.
- Í kjölfar nýlegra breytinga á húsnæði sendiráðsins er nú gengið inn um inngang byggingarinnar við 55 Sloane Street, SW1X 9SR.
- Athygli er vakin á að sendiráðið verður lokað á frídegi verslunarmanna mánudaginn 3. ágúst.
Sendiráðið verður með sérstaka opnunartíma vegna kosninganna þar sem ekki þarf að bóka tíma sérstaklega, á eftirfarandi dögum:
- Laugardaginn 15. ágúst frá kl. 10:00-14:00
- Þriðjudaginn 18. ágúst frá kl. 17:00-19:00.
Einnig verður hægt að kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands.
- Þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum þurfa að panta tíma fyrirfram hjá viðkomandi ræðismanni.
- Hér má sjá lista yfir opnunartíma, dagsetningar, staðsetningar og fyrirkomulag kosninga utan kjörfundar erlendis hjá sendiskrifstofum Íslands og hjá ræðismönnum víðs vegar um heiminn.
Aðrar gagnlegar upplýsingar:
- Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.
- Kjósendum er bent á að fletta upp hvort og hvar þeir séu á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
- Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í almennan póst. Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu.
- Finna má allar helstu upplýsingar inná vefsíðunni https://www.thjodaratkvaedi.is og á upplýsingavef utanríkisráðuneytisins og síðu landskjörstjórnar https://island.is/s/landskjorstjorn