23 júlí 2026
/
Kosning utan kjörfundar í Kanada vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið
Sendiráð Íslands í Ottawa vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sem fer fram á Íslandi 29. ágúst n.k.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hjá sendiráðinu og kjörræðismönnum Íslands mánudaginn 27. júlí.
Hér má finna lista yfir opnunartíma, staðsetningu og fyrirkomulag kosningu utan kjörfundar erlendis hjá sendiskrifstofum Íslands og hjá kjörræðismönnum. Athugið að þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands þurfa að kynna sér vel opnunartíma og hafa samband við kjörræðismenn fyrirfram sé óskað eftir því.
Í sendiráði Íslands í Ottawa er hægt að greiða atkvæði milli kl. 10:00 og 15:00 alla virka daga en bóka þarf tíma fyrirfram.
Netfang: [email protected]
Sími: +1 (613) 482 1944
Heimilisfang: 360 Albert Street, Suite 710, Ottawa, ON K1R 7X7
Einnig verður hægt að kjósa hjá ræðismönnum Íslands víðs vegar um Kanada. Hægt er að sjá lista yfir dagsetningar, opnunartíma og staðsetningu ræðismanna hér (undir Kanada)
Stjórnarráðið | Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis: Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026
Gagnlegar upplýsingar:
- Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.
- Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila.
- Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í almennan póst.
- Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega, eins og tekið fram hér að ofan, og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
- Íslenskir ríkisborgarar sem eru með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag hafa rétt til að greiða atkvæði.
- Sendiráðið vekur athygli á því að eftir breytingar á kosningalögum halda íslenskir ríkisborgarar nú kosningarétti sínum í 16 ár í staðinn fyrir 8 ár eftir flutning til útlanda. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.
- Kjörskrá verður birt 24. júlí. Eftir þann dag geta kjósendur flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
- Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á kosning.is
- Sjá upplýsingasíðu utanríkisráðuneytisins um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.