23 júlí 2026

/

Kosning utan kjörfundar í Noregi vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB

{image.Description}

Sendiráð Íslands í Osló vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sem fer fram á Íslandi 29. ágúst n.k.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hjá sendiráðinu og kjörræðismönnum Íslands mánudaginn 27. júlí.

Hér má finna lista yfir opnunartíma, staðsetningu og fyrirkomulag kosningu utan kjörfundar erlendis hjá sendiskrifstofum Íslands og hjá kjörræðismönnum. Athugið að þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands þurfa að kynna sér vel opnunartíma og hafa samband við kjörræðismenn fyrirfram sé óskað eftir því.

Í sendiráðinu í Osló er hægt að greiða atkvæði milli kl. 10:00 og 15:00 alla virka daga.

Einnig verður boðið upp á sérstakan opnunartíma:

  • Þriðjudaginn 11. ágúst, opið til kl. 19:00
  • Laugardaginn 15.ágúst frá kl. 11:00 - 14:00
  • Þriðjudaginn 18. ágúst, opið til kl. 19:00

Ekki er þörf á að panta tíma til að koma og greiða atkvæði en biðraðir geta myndast, sérstaklega á þriðjudögum, miðvikudögum og á föstudögum þegar opið er fyrir tímapantanir í vegabréfsumsóknir. Við biðjum fólk vinsamlega að sýna því skilning. 

Gagnlegar upplýsingar:
- Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá. 

- Sendiráðið mælir eindregið til þess að kjósendur greiði atkvæði í síðasta lagi fyrir lok viku 34. Sé það gert má gera ráð fyrir að atkvæðið nái í rétt kjördæmi á Íslandi í tæka tíð með tilliti til póstsendingartíma. Eins og má sjá á heimasíðu Posten getur sendingartími tekið ca. viku, sjá hér: Skal du sende brev til utlandet?.

- Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í almennan póst. Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega, eins og tekið fram hér að ofan, og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.

- Íslenskir ríkisborgarar sem eru með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag hafa rétt til að greiða atkvæði.

- Sendiráðið vekur athygli á því að eftir breytingar á kosningalögum halda íslenskir ríkisborgarar nú kosningarétti sínum í 16 ár í staðinn fyrir 8 ár eftir flutning til útlanda. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.

- Kjörskrá verður birt 24. júlí. Eftir þann dag geta kjósendur flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár.

- Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á kosning.is

 

Kosning utan kjörfundar hjá ræðismönnum Íslands:

Bergen
Hægt verður að kjósa á ræðisskrifstofunni eftirfarandi daga:

  • Laugardaginn 15. ágúst kl. 13.00-15.00
  • Miðvikudaginn 19. ágúst kl. 16.00-18.00
  • Laugardaginn 22. ágúst kl. 13.00-15.00

Frekari upplýsingar verða auglýstar á Facebook-síðu ræðisskrifstofunnar: Islands Konsulat i Bergen.

Heimilisfang ræðisskrifstofunnar: Stiftelsen Brygge, Bredsgården 1D, Bryggen, Bergen.


Bodø
Hægt verður að panta tíma hjá ræðismanni Íslands í Bodø dagana 3.-6.ágúst og 20.-23.ágúst. Pantað er tíma með því að senda tölvupóst á [email protected] eða í síma +47 902 09 533.

Frekari upplýsingar á facebooksíðu ræðisskrifstofunnar: Islands konsulat i Bodø og Nordland.

Heimilisfang ræðisskrifstofu: Muskat AS, Sjøgata 15, Bodø.

Haugesund
Hægt verður að kjósa á ræðisskrifstofunni eftirfarandi daga:

  • Mánudaginn 27. júlí til föstudaginn 31. júlí kl. 09:00-12:00
  • Mánudaginn 3. ágúst til fimmtudaginn 6. ágúst kl. 09:00-15:30
  • Föstudaginn 7. ágúst kl. 09:00-12:00
  • Mánudaginn 10. ágúst til föstudaginn 14. ágúst kl. 09:00-15:30
  • ATH: lengri opnunartími miðvikudaginn 12. ágúst kl. 09:00-19:00
  • Mánudaginn 17. ágúst til fimmtudaginn 20. ágúst kl. 09:00-15:30

Eða samkvæmt samkomulagi við ræðisskrifstofu í tölvupósti [email protected].

Heimilisfang ræðisskrifstofu: Hagland Sjøfartsbygget, Smedasundet 97, Haugesund


Kristiansand
Hægt verður að kjósa á ræðisskrifstofunni eftir samkomulagi frá 3. ágúst. Hægt er að ná í ræðismann með tölvupósti [email protected] eða í síma +47 40 29 09 85.

Heimilisfang ræðisskrifstofu: Markensgate 2A, Kristiansand


Stavanger/Bryne
Hægt verður að kjósa á ræðisskrifstofunni eftirfarandi daga:

  • Þriðjudaginn 4. ágúst kl. 11.00-14.00
  • Þriðjudaginn 11. ágúst kl. 11.00-14.00

Eða samkvæmt samkomulagi við ræðisskrifstofu í tölvupósti [email protected]

Heimilisfang ræðisskrifstofu: Jæren Sparebank, Jernbanegata 6, Bryne


Tromsø
Hægt verður að kjósa á ræðisskrifstofunni samkvæmt samkomulagi við ræðismann í tölvupósti [email protected].

Heimilisfang ræðisskrifstofu: JobZone, Grønnegata 53, Tromsø


Trondheim/Tiller
Hægt verður að kjósa á ræðisskrifstofunni eftirfarandi daga:

  • Laugardaginn 15. ágúst kl. 11.00-13.00
  • Þriðjudaginn 18. ágúst kl. 16.00-19.00

Við komu á ræðisskrifstofuna þarf að hringa í ræðismann í síma 93 24 31 41.

Heimilisfang ræðisskrifstofu: Prosjektutvikling Midt-Norge, Vestre Rosten 77, Tiller


Ålesund
Hægt er að kjósa samkvæmt samkomulagi við ræðismann í tölvupósti [email protected] eða í síma 90 91 62 30.

Heimilisfang ræðisskrifstofu: Brunholmgata 2, Ålesund

Sérstakir opnunartímar fyrir kosningar:

Fimmtudaginn 13. ágúst, kl. 16:30 - 17:30

Föstudaginn 14. ágúst, kl. 15:30 - 16:30