23 júlí 2026

/

Kosning utan kjörfundar í Sviss og Liechtenstein vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið

{image.Description}

Sendiráð Íslands í Genf vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem fer fram á Íslandi 29. ágúst næstkomandi.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá sendiráðum og kjörræðismönnum Íslands hefst mánudaginn 27. júlí.

Bóka þarf tíma til þess að kjósa í sendiráðinu í Genf og hjá ræðismönnum.

Hér má sjá lista yfir opnunartíma, dagsetningar, staðsetningar og fyrirkomulag kosninga utan kjörfundar erlendis hjá sendiskrifstofum Íslands og hjá ræðismönnum víðs vegar um heim.

Sjá hér upplýsingar um kjörstaði í Sviss og Liechtenstein:

Sendiráð Íslands í Genf

  • Bóka þarf tíma til að kjósa í sendiráðinu í Genf í gegnum bókunarsíðu sendiráðsins.
  • Sendiráðið verður með sérstaka opnun sunnudaginn 16. ágúst milli 11:00 - 14:00 þar sem kjósendur geta komið og greitt atkvæði.

Bern

  • Hægt verður að kjósa hjá ræðismanni 14. , 21. og 28. ágúst.
  • Bóka þarf tíma hjá ræðismannimeð því að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í +41 31 326 27 56

Zürich

  • Hægt verðu að kjósa hjá ræðismanni á tímabilinu 17. - 28. ágúst. 
  • Bóka þarf tíma hjá ræðismanni með því að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í +41 52 258 10 30

Liechtenstein

  • Hægt verður að kjósa hjá ræðismanni á tímabilinu 17. - 28. ágúst.
  • Bóka þarf tíma hjá ræðismanni með því að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í +423 340 08 28

Við hvetjum alla kjósendur sem hyggjast kjósa utan kjörfundar í Sviss eða Liechtenstein til að bóka tíma með góðum fyrirvara.

Mikilvægar upplýsingar:

Hér má finna nákvæmar upplýsingar um staðsetningar, opnunartíma, dagsetningar og fyrirkomulag kosninga erlendis hjá sendiskrifstofum Íslands eða hjá kjörræðismönnum víða um heim. 

Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá. 

Íslenskir ríkisborgarar sem eru með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag hafa rétt til að greiða atkvæði.

Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.

Kjörskrá verður birt 24. júlí. Eftir þann dag geta kjósendur flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár.

Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á kosning.is

Einnig má finna nytsamlegar upplýsingar á vef utanríkisráðuneytisins.

Sjá vef landskjörstjórnar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu.