23 júlí 2026
/
Kosning utan kjörfundar í Danmörku vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á Íslandi 29. ágúst nk.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hjá sendiráðinu og kjörræðismönnum Íslands mánudaginn 27. júlí og lýkur föstudaginn 28. ágúst.
Í sendiráðinu í Kaupmannahöfn er hægt að greiða atkvæði a milli kl. 9:00 og 16:00 alla virka daga.
Þar að auki verður lengdur opnunartími þessa daga:
Þriðjudag 4 . ágúst frá 16:00 - 19:00,
Þriðjudag 11. ágúst frá 16:00 - 19:00,
Mánudag 17. ágúst frá 16:00 til 19:00.
Auk þess verður sendiráðið opnað sérstaklega vegna atkvæðagreiðslunnar eftirfarandi daga:
Laugardag 8. ágúst frá 10:00 - 14:00,
Laugardag 15. ágúst frá 10:00 - 14:00.
Athugið að sendiráðið er lokað mánudaginn 3. ágúst.
Hægt verður að kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands í Danmörku, eftir því sem hér kemur fram:
Aalborg
+ 45 9838 1888, [email protected]
Opið 3. – 28. ágúst, frá 8:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og 8:00 til 15:30 á föstudögum.
Þarf að bóka tíma ef fleiri ætla að koma samtímis.
Aarhus
+ 45 3334 0005, [email protected]
Opið frá 9:00 til 16:00 frá 27.júlí til 28. ágúst á virkum dögum. Þarf ekki að bóka tíma.
Auk venjulegs opnunartíma verður hægt að greiða atkvæði á eftirfarandi tímum, en þau sem hyggjast nýta sér þennan aukna opnunartíma eru beðin um að bóka tíma hjá Carl Erik Skovgaard
• Laugardaginn 8. ágúst kl. 9:00–11:00
• Mánudaginn 10. ágúst kl. 16:00–19:00
• Sunnudaginn 16. ágúst kl. 10:00–12:00
• Mánudaginn 17. ágúst kl. 16:00–19:00
Bornholm
+45 5455 9839, [email protected]
Hægt að kjósa allt tímabilið nema 11.-12. ágúst og 27.-28. ágúst.
Þarf að bóka tíma.
Esbjerg
+ 45 7022 6660, [email protected]
Frá 4.–28. ágúst, þarf að panta tíma hjá Kirsten Hansen, netfang: [email protected] eða í síma + 45 7611 5405.
Odense
+ 45 2625 7920, [email protected]
Hægt að kjósa allt tímabilið. Þarf að panta tíma.
Sønderborg
+ 45 7443 1122, +45 4014 3108, [email protected]
Hægt að kjósa allt tímabilið. Þarf að panta tíma.
Thisted
+ 45 9792 2888, [email protected]
Hægt að kjósa alla virka daga frá 27. júlí til 28. ágúst.
Opið mánudaga og föstudaga frá kl. 08.00-14.00, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 08.00-15.00, og miðvikudaga frá kl.08.00-16.00
Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.
Athugið að þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands þurfa að kynna sér vel opnunartíma og hafa samband við kjörræðismenn fyrirfram sé óskað eftir því.
Íslenskir ríkisborgarar sem eru með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag hafa rétt til að greiða atkvæði. Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.
Kjörskrá verður birt 24. júlí. Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á kosning.is
Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í almennan póst. Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
Sendiráðið í Kaupmannahöfn fer einnig með fyrirsvar gagnvart Grikklandi, og því er vert að benda á að hægt er að kjósa hjá kjörræðismanni Íslands í Grikklandi eftir því sem hér segir:
Aþena
+ 30 6977 390 555, [email protected]
Hægt að kjósa hjá honum frá 27. júlí - 7. ágúst og frá 24. – 27. ágúst.
Þarf að hafa samband og panta tíma.