24 júlí 2026
/
Kosning utan kjörfundar á Grænlandi vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið
Aðalræðisskrifstofa Íslands í Nuuk vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem fer fram á Íslandi 29. ágúst næstkomandi.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á aðalræðisskrifstofu Íslands í Nuuk mánudaginn 27. júlí.
Opnunartímar:
Hægt verður að kjósa alla virka daga eftir samkomulagi. Hafið samband við aðalræðisskrifstofu Íslands.
- Netfang: [email protected] ; [email protected]
- Sími: + 299 34 83 80 og +299 56 23 01
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá kjörræðismönnum:
Nánari upplýsingar um opnunartíma hjá kjörræðismönnum Íslands víða um heim má finna á síðu utanríkisráðuneytisins.
Athugið að þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands þurfa að hafa samband við kjörræðismenn fyrirfram.
Gagnlegar upplýsingar
Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.
Íslenskir ríkisborgarar sem eru með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag hafa rétt til að greiða atkvæði.
Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.
Kjörskrá verður birt 24. júlí. Eftir þann tíma geta kjósendur flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
Hvernig kem ég atkvæði mínu til skila?
Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjósandi getur beðið kjörstjóra um að setja atkvæði í almennan póst, en það tryggir ekki að atkvæðið berist í tæka tíð.
Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
Nánari upplýsingar:
Sjá vefsíðu Landskjörstjórnar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Sjá upplýsingasíðu utanríkisráðuneytisins um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið
Önnur lönd
Upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands og kjörræðismenn eftir löndum.