30 júlí 2026
/
Mál nr. 59/2026 Úrskurður 30. júlí 2026
Mál nr. 59/2026 Eiginnafn: Drangey (kvk.)
Hinn 30. júlí 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 59/2026 en erindið barst nefndinni 8. júlí 2026.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Drangey (kvk.) tekur íslenska eignarfallsendingu, Drangeyjar, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Drangey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.