04 ágúst 2026

/

Dómsmálaráðherra skipar nýja bótanefnd

{image.Description}
Hari

Dómsmálaráðherra hefur skipað Huldu Elsu Björgvinsdóttur, lögfræðing, Helgu Kristínu Biering Auðunsdóttur, lögfræðing og Erlend Þór Gunnarsson, lögmann, í bótanefnd. 

Hulda Elsa verður formaður nefndarinnar.  Þau eru öll ný í nefndinni. Skipun þeirra er til fjögurra ára og gildir frá og með 1. ágúst til 31. júlí 2030. Varamenn verða lögfræðingarnir Ásdís Ármannsdóttir, Kolfinna Tómasdóttir og Kristján Baldursson.

Þeir sem verða fyrir ofbeldiskenndum brotum eins og líkamsárás, kynferðisbroti eða frelsissviptingu geta átt rétt á skaðabótum eða miskabótum frá ríkissjóði. 
Sótt er um bætur til bótanefndar sem fjallar sérstaklega um hvert  mál og ákveður hvort umsókn sé samþykkt eða henni synjað. 

Ef greiðsla bóta er samþykkt er fjárhæð ákveðin af bótanefnd í óupplýstum málum eða í dómi þegar mál hefur endað með sakfellingu. 

Skrifstofa bótanefndar er hjá sýslumanninum á Norðurlandi eystra, sýsluskrifstofunni á Siglufirði. Þangað á að beina öllum fyrirspurnum um mál til meðferðar og hvaða reglur gilda. 

Hægt er að lesa nánar um bætur til þolenda afbrota hér og hér.