04 ágúst 2026

/

Drög að frumvarpi um Stafræna heilsu til umsagnar

{image.Description}
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra

Heilbrigðisráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt drög að frumvarpi um Stafræna heilsu. Með frumvarpinu er lagður grundvöllur að uppbyggingu og samhæfingu sameiginlegra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins sem Stafræn heilsa mun leiða. Frumvarpið leggur grunn að betri, skilvirkari og öruggari heilbrigðisþjónustu, þar sem réttar upplýsingar nýtast betur, samfella í þjónustu verður efld og þarfir notenda settar skýrar í forgrunn.

Sérstök skrifstofa Stafrænnar heilsu tók til starfa í upphafi árs í heilbrigðisráðuneytinu til að sinna þessari umbreytingu og þróun. Markmið Stafrænnar heilsu er skýr: að notendur upplifi öruggari og samfelldari þjónustu og starfsfólk fái aðgang að tólum sem auka skilvirkni, draga úr álagi og veita möguleika á að verja meiri tíma með sjúklingnum í stað tímafrekrar tölvuvinnu. Þannig skapast traustur grunnur þar sem ábyrgð á stafrænum innviðum er á einni hendi og aukin tækifæri til að móta nútímalegt og notendavænt heilbrigðiskerfi.

Stafræn heilbrigðisþjónusta hefur þróast hratt síðustu ár og gegnir sífellt stærra hlutverki í heilbrigðiskerfinu. Í úttekt heilbrigðisráðuneytisins á stafrænni þróun árið 2025 kom fram að ábyrgð á sameiginlegum stafrænum innviðum væri dreifð á marga aðila og skýra ábyrgðarskipan skorti. Frumvarpið er svar við þeirri niðurstöðu.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að Stafræn heilsa annist uppbyggingu, rekstur og samhæfingu sameiginlegra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins. Lagt er til að styrkja lagaheimildir um staðla, upplýsingaöryggi og vinnslu persónuupplýsinga sem nauðsynleg er vegna reksturs innviðanna. Til að tryggja samræmi eru einnig lagðar til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum um sjúkraskrár og lögum um landlækni og lýðheilsu.

Frumvarpið er liður í framkvæmd Heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og stefnu um stafræna heilbrigðisþjónustu. Hagaðilar eru hvattir til að senda inn umsögn í Samráðsgátt.

Frumvarpið í samráðsgátt