07 ágúst 2026
/
Drengja- og stúlknalið Ascent Soccer frá Malaví heimsóttu utanríkisráðuneytið
Drengja- og stúlknalið knattspyrnuakademíunnar Ascent Soccer frá Malaví kom við í utanríkisráðuneytinu í vikunni og hélt erindi fyrir starfsfólk þess. Ungmennin voru á Íslandi til þess að taka þátt í knattspyrnumótinu Rey Cup sem fram fór undir lok júlímánaðar. Bæði lið gestanna náðu þeim frábæra árangri að leika til úrslita á mótinu og sigraði drengjaliðið í sínum aldursflokki.
Malaví hefur um langt árabil verið samstarfsland í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands en landið er eitt hið fátækasta í heimi. Malavíska þjóðin er afar ung og er meira en helmingur íbúa undir 18 ára aldri. Í ljósi þess er áhersla lögð á samstarfsverkefni sem bæta aðgengi að menntun, gæði hennar og að skapa aukin framtíðartækifæri fyrir ungt fólk, sér í lagi stúlkur. Ascent Soccer er leiðandi afl í þjálfun stúlkna í Malaví og veitir efnilegum knattspyrnuiðkendum aðgang að menntun og tækifæri til að stunda knattspyrnu við góðar aðstæður í Lilongwe, höfuðborg Malaví. Leiðarljós akademíunnar er að koma iðkendum í atvinnumennsku eða í nám erlendis á knattspyrnutengdum skólastyrkjum.
Lið frá Malaví hafa tvívegis áður komið og tekið þátt á Rey Cup en verkefnið er einnig liður í að styrkja betur tengsl Íslands og Malaví utan hefðbundins þróunarstarfs. Auk þess að keppa á Rey Cup, léku liðin æfingaleiki við íslensk félög og munu tvær stúlkur dvelja áfram á Íslandi í þrjá mánuði og æfa með meistaraflokki kvenna hjá Stjörnunni og aðstoða við þjálfun yngri flokka félagsins.
Sem fyrr segir er Malaví eitt þriggja áherslulanda Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu en hin eru Úganda og Síerra Leóne. Ísland hefur um árabil stutt við uppbyggingu á grunnþjónustu á sviði heilbrigðisþjónustu, menntunar og vatns- og hreinlætismála auk sérstakrar áherslu á umhverfismál. Þar sem mannréttindi og jafnrétti eru ávallt í öndvegi þegar kemur að þróunarsamvinnu Íslands er markmið verkefnisins að styðja við nýja kynslóð leiðtoga og fyrirmynda í Malaví með því að auka aðgang stúlkna að skipulögðu knattspyrnustarfi og veita þeim tækifæri til menntunar og menningartengsla. Verkefnið hefur þegar skilað áþreifanlegum árangri með byggingu nýrrar heimavistar fyrir stúlkur sem tryggir akademíunni jafnan aðbúnað fyrir drengi og stúlkur.
Ascent Soccer hefur einnig staðið fyrir hæfileikamótum í samstarfshéruðum Íslands, Mangochi og Nkhotakota. Þau fela í sér þátttöku rúmlega 1500 stúlkna á aldrinum tíu til tólf ára og þjálfara stúlknaliða þar sem áhersla hefur verið á vitundarvakningu um menntunartækifæri sem geta fylgt íþróttaiðkun. Einnig munu tveir Íslendingar halda til Malaví á næsta ári til að styðja tímabundið við kennslu og þjálfun stúlkna hjá akademíunni.