07 ágúst 2026

/

Ráðherra heimsótt öll lögregluembætti

{image.Description}
Arndís Bára Ingimarsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra í Vestmannaeyjum í dag.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, heimsótti í gær lögreglustjórann á Vestfjörðum ásamt ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins. Í dag var ráðherra hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum. Þar með er lokið hringferð þar sem öll lögregluembætti á landinu voru sótt heim. 

Farið var í hringferðina til að kynna fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á lögreglunni. Ráðherra hyggst mæla fyrir frumvarpi um breytingarnar í haust og voru áformin lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda fyrr í sumar.  Þau má lesa hér.  Stærsta breytingin verður sú að lögregluembættum verður fækkað úr níu í fjögur til fimm. Þannig eiga að verða til stærri og öflugri embætti um land allt.  Sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verður skoðuð sérstaklega.

Rík áhersla á samráð og samtal

Með hringferðinni gafst lögreglumönnum tækifæri til að ræða beint við ráðherra og koma sínum skoðunum eða áhyggjum á framfæri.

Mikil áhersla hefur verið lögð á náið samstarf og samtal við lögregluna í tengslum við breytingarnar. Sérstakur samráðshópur, skipaður starfsfólki ráðuneytisins, lögreglu og hagsmunasamtökum lögreglumanna, mun funda reglulega um nánari útfærslur á breytingunum.  

Ráðherra meðvituð um ólík sjónarmið

Ráðherra hefur á fundum sínum með lögreglu verið afdráttarlaus um að skipulagsbreytingunum  fylgi hvorki fækkun starfsfólks né lögreglustöðva. Markmiðið sé þvert á móti að efla lögregluna og gera henni betur kleift að takast á við breyttan veruleika.

„Ég er sannfærð um að breytingarnar eigi fyrst og fremst eftir að styrkja löggæsluna í landinu. Engu að síður var algjört lykilatriði að hitta lögreglumenn á öllu landinu og eiga við þá opið og hreinskiptið samtal. Á þessum fundum okkar hafa komið fram ólík sjónarmið sem ég er mjög þakklát fyrir og þau verða höfð til hliðsjónar þegar breytingarnar verða útfærðar nánar,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.