07 ágúst 2026
/
Utanríkisráðherra fundaði með varnarmálaráðherra Belgíu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, fundaði í dag með Theo Francke, varnarmálaráðherra Belgíu, sem var í heimsókn á Íslandi í tengslum við loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins en þetta er í annað skipti sem belgíski flugherinn sinnir loftrýmisgæslunni hér á landi.
Belgía sendir fjórar F-16 orrustuþotur og um 100 manna liðsafla til Íslands vegna verkefnisins og tók Francke á móti þeim á Keflavíkurflugvelli eftir fundinn í dag. Belgíski flugherinn tók í fyrsta skipti þátt í loftrýmisgæslu hér á landi árið 2025 og þetta því annað árið í röð þar sem Belgar sinna verkefninu.
Á fundi sínum í dag ræddu Þorgerður Katrín og Francke meðal annars þróun öryggis- og varnarmála í Evrópu, aukna ábyrgð Evrópu á eigin vörnum, stuðninginn við Úkraínu og öryggismál á Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum.
Þá ræddu ráðherrarnir tvíhliða varnarsamstarf Íslands og Belgíu og mikilvægi Keflavíkurflugvallar fyrir loftrýmisgæslu og aðra starfsemi Atlantshafsbandalagsins á Íslandi.
„Þátttaka Belga í loftrýmisgæslu hér á landi er áþreifanlegt dæmi um það hvernig sameiginlegar varnir Atlantshafsbandalagsins virka í framkvæmd,“ sagði Þorgerður Katrín eftir fundinn. „Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir framlag þeirra og tökum vel á móti belgíska flughernum á Keflavíkurflugvelli. Öryggi Íslands og bandalagsins í heild sinni byggist á því að ríki þess standi saman og leggi öll sitt af mörkum.“