13 ágúst 2026

/

Ráðherra heimsótti frumkvöðlasetrið Drift EA

{image.Description}
Ráðherra heimsóttir Drift EA frumkvöðlasetrið á Akureyri í tilefni þess að Ignite Nordic var formlega hrundið úr vör.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, heimsótti frumkvöðlasetrið Drift EA á Akureyri í tilefni þess að samnorræna samstarfsverkefninu Ignite Nordic var formlega hleypt af stokkunum. Verkefninu er ætlað að efla nýsköpun með því að tengja frumkvöðla, fyrirtæki og opinbera aðila og skapa þannig ný tækifæri til samstarfs, atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar, ekki síst á landsbyggðinni.  

Markmið verkefnisins er að auka samkeppnishæfni fyrirtækja með því að auðvelda þeim að nýta nýsköpun í rekstri sínum, um leið og frumkvöðlar fá tækifæri til að þróa lausnir sínar í samstarfi við raunverulega viðskiptavini. Verkefnið auðveldar sprotafyrirtækjum að komast í samband við sína fyrstu stærri viðskiptavini og styður fyrirtæki og stofnanir í að finna nýjar lausnir við raunverulegum áskorunum. Með markvissri pörun áskorana og lausna skapast grundvöllur fyrir samstarf sem leiðir til nýsköpunar, vaxtar og aukinnar verðmætasköpunar. 

„Íslendingar búa yfir miklu hugviti og öflugum frumkvöðlum um allt land. Ein stærsta áskorunin er þó oft að skapa tengslin milli þeirra sem þróa nýjar lausnir og þeirra sem geta nýtt þær. Ignite Nordic er skref í þá átt að stytta þessa leið, efla samstarf og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar. Þannig styrkjum við samkeppnishæfni atvinnulífsins og styðjum við öfluga atvinnuuppbyggingu um land allt,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. 

Verkefnið er leitt af Drift EA á Akureyri í samstarfi við norræna samstarfsaðila, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE), Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), Háskólafélag Suðurlands (HFSU), KLAK – Icelandic Startups, Sjávarklasann, IceBAN – samtök englafjárfesta á Íslandi og Fjársýsluna. 

„Oft eru lausnirnar til staðar en tengingarnar vantar. Með Ignite Nordic á Íslandi viljum við skapa markvissan vettvang þar sem fyrirtæki og frumkvöðlar geta fundið hvort annað og byggt upp samstarf sem leiðir til vaxtar og nýsköpunar,“ segir Sesselja Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA. 

Ignite Nordicer fjármagnað af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, Drift EA, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE) og Háskólafélagi Suðurlands (HFSU). 

Sesselja I. Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Drift EA, Sigmar Bjarni Sigurðarson, leiðtogi Ignite Nordic á Íslandi, Kristján Þór Júlíusson, stjórnarformaður Drift EA, María Ólofsson frá Ignite Nordic og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.