14 ágúst 2026

/

Sumarfundur ríkisstjórnarinnar var haldinn á Höfn

{image.Description}

Árlegum sumarfundi ríkisstjórnarinnar sem var haldinn á Höfn í Hornafirði og nágrenni lauk í dag.

Í gær hélt ríkisstjórnin vinnufund þar sem farið var yfir áherslur ríkisstjórnarinnar fyrir komandi þingvetur, auk þess sem rætt var um stöðu efnahagsmála og vinnumarkaðar og Evrópumál.

Ríkisstjórnin átti einnig fund í Nýheimum á Höfn með fulltrúum Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Skaftárhrepps og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Á fundinum var m.a. fjallað um málefni Vatnajökulsþjóðgarðs, menntamál, atvinnu og samgöngur á Suðausturlandi.

Í morgun var haldinn ríkisstjórnarfundur á Fosshótel Vatnajökli. Dagskrá sumarfundarins lauk með heimsókn ráðherra í ýmis fyrirtæki og stofnanir á svæðinu ásamt vígslu á viðbyggingu við hjúkrunarheimilið Skjólgarð.

„Það var ánægjulegt að fá ríkisstjórnina hingað í Hornafjörðinn til vinnufundar, og hefur staðið til um nokkra hríð. Við höfum átt gott samtal við heimamenn um sóknarfærin á Suðausturlandi og frekari framkvæmdir nú þegar búið er að vígja nýju brúna yfir Hornafjarðarfljót og nýbygginguna við hjúkrunarheimilið Skjólgarð og verið er að fara í umfangsmiklar hafnarframkvæmdir á Höfn,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. „Ríkisstjórnin náði líka að fara vel yfir helstu þingmál vetrarins og við munum mæta vel stemmd til leiks á nýju þingi.“

Ríkisstjórnin ásamt fulltrúum Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Skaftárhrepps og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.