Íslenskur garðyrkjubóndi valin ein af 100 kvenhetjum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ (FAO)
Íslenskur garðyrkjubóndi Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir hefur verið valin í hóp fyrstu 100 kvenhetja Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ (FAO) í landbúnaði og byggðaþróun. Í bréfi frá QU Dongyu forstjóra FAO til Höllu segir að hún hafi með vinnu sinni sýnt fram á hvernig konur eru að umbreyta landbúnaðarkerfum í dreifbýli, styrkja samfélög og skapa tækifæri fyrir komandi kynslóðir. Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ (FAO) er innilega þakklát fyrir skuldbindingu hennar, óteljandi vinnustundir, fórnir og þrautseigju til að ná slíkum árangri. Sem ein af kvenhetjum FAO gengur Halla til liðs við einstakan hóp kvenna sem leggja sitt af mörkum til að móta betri framtíð fyrir matvælaframleiðslu, sjálfbærari landbúnað og lífsskilyrði í dreifbýlissamfélögum. Árangurinn sem hún hefur náð endurspegli þau gildi sem FAO vill draga fram á þessu ári tileinkuðu konum í landbúnaði.