21 ágúst 2026

/

Stefnt að verklokum framkvæmda við Nýjan Landspítala árið 2029

{image.Description}
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra ásamt Ólafi M. Birgissyni, sviðsstjóra framkvæmdasviðs NLSH þegar Alma kynnti sér stöðu verkefna á framkvæmdasvæðinu við Hringbraut í liðinni viku.

Uppbygging Landspítala er ein umfangsmesta innviðauppbygging sem farið hefur fram hér á landi. Heildarfjárfestingin dreifist yfir langt framkvæmdatímabil, sem hófst árið 2010 og nær til ársins 2031 og fullfjármögnuð í gildandi fjármálaáætlun Alþingis.

Stjórn Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og stýrihópur um skipulag framkvæmda við Landspítala og annarra sérhæfðra sjúkrahúsa hefur kynnt heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra uppfærða heildaráætlun NLSH.

Mikil uppbygging hefur átt sér stað við Hringbraut og nær allri ytri vinnu við nýjan meðferðarkjarna er lokið. Á annað ár er síðan innri vinna hófst í kjöllurum og á legudeildum á tveimur efstu hæðum hússins. Gert er ráð fyrir að byggingaframkvæmdum ljúki að mestu við nýjan meðferðarkjarna í árslok 2029. Samhliða verklokum hefst yfirfærslutími þannig að spítalinn geti hafið starfsemi með nýjum tækjakosti og búnaði. Unnið er nú þegar að skipulagningu flutninga með erlendum sérfræðingum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við innanhússfrágang og tækjavæðingu í rannsóknahúsi ljúki á undan meðferðarkjarna.

Undir Hringbrautarverkefni falla meðferðarkjarni, rannsóknahús, bílastæða- og tæknihús, bílakjallari og ýmis stofnkerfi. Auk þess gatna-, jarðvegs- og veituframkvæmdir og sjúkrahótel sem tekið var í notkun 2019.

Auk heildaráætlunar vegna núverandi verkefna NLSH við Hringbraut og annarra verkefna þeim tengdum frá árinu 2026 til ársins 2031 liggja einnig fyrir áætlanir NLSH fyrir sérhæfðar sjúkrahúsbyggingar utan Hringbrautar. Um er að ræða nýbyggingu fyrir endurhæfingarþjónustu við Grensás á vegum Landspítala sem lýkur í upphafi ársins 2027. Nýbyggingu til að hýsa legu-, dag- og göngudeildir við Sjúkrahúsið á Akureyri sem lýkur árið 2031. Einnig hefur verið unnið að stækkun matsdeildar bráðamóttöku í Fossvogi, sem lýkur fyrir haustið árið 2026.