24 ágúst 2026
/
Fyrsta raflínunefndin hefur störf
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað fyrstu raflínunefndina á Íslandi þ.e. raflínunefnd um Holtavörðuheiðarlínu 1, sbr. ákvörðun ráðherra 14. nóvember síðastliðinn.
Nefndin er skipuð í samræmi við ákvæði í skipulagslögum frá árinu 2023 og er tilgangur hennar að brúa ágreining og tryggja að stórframkvæmdir, sem varða mikilvæga þjóðarhagsmuni, geti gengið eftir á málefnalegan og skilvirkan hátt.
Hlutverk raflínunefndar er:
- Að undirbúa, kynna og afgreiða raflínuskipulag fyrir framkvæmd í flutningskerfi raforku sem nær til tveggja eða fleiri sveitarfélaga.
- Að veita framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku sem byggjast á samþykktri kerfisáætlun.
- Að hafa eftirlit með framkvæmdum í flutningskerfi raforku og framkvæmd raflínuskipulags.
Formaður raflínunefndarinnar er Gissur Pétursson en nefndin er einnig skipuð fulltrúum Borgarbyggðar, Húnaþings vestra, Hvalfjarðarsveitar og umhverfis- orku og loftslagsráðuneytis.
Nefndin er skipuð þar til framkvæmd er lokið.