25 ágúst 2026
/
Einarður stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í fyrradag og í gær þátt í fjarfundum með Volodómír Selenskí Úkraínuforseta og leiðtogum helstu stuðningsríkja Úkraínu í tilefni af endurreisn sjálfstæðis landsins fyrir 35 árum.
Staða mála í innrásarstríði Rússa í Úkraínu var rædd á trúnaðarfundum leiðtoganna og var sjónum einkum beint að helstu áskorunum við að verja Úkraínu gegn áköfum skotflaugaárásum Rússa og þörfina á að herða enn á þrýsting gagnvart Rússlandsstjórn svo unnt verði að koma á vopnahléi. Undirstrikuðu leiðtogar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna eindreginn stuðning sinn við varnarbaráttu Úkraínu í sameiginlegri yfirlýsingu.
„Rússar halda áfram að valda hrikalegri eyðileggingu í innrásarstríði sínu gegn Úkraínu. Við fordæmum Rússlandsstjórn harðlega fyrir grimmilegar árásir á almenna borgara og borgaraleg skotmörk og áréttum samstöðu okkar og stuðning við Úkraínu“ segir forsætisráðherra.
„Það er harður vetur framundan. Staðan er einfaldlega þannig að stuðningsríkjum Úkraínu, austan hafs og vestan, ber að gera allt sitt til að mæta varnarþörfum Úkraínu og að styðja við Úkraínumenn með því að leita allra leiða til að tryggja orkuöryggi í landinu,“ segir forsætisráðherra.
Í yfirlýsingu leiðtoganna með Úkraínuforseta kemur m.a. fram að NB8-ríkin styðji við Úkraínu svo lengi sem þörf er á og eru árásir Rússa á almenna borgara og borgaralega innviði harðlega fordæmdar. Er stuðningi einnig lýst yfir við hertar þvingunaraðgerðir gagnvart Rússlandi.
Í gær tók forsætisráðherra svo þátt í fjarfundi leiðtoga ríkjahóps til stuðnings Úkraínu sem að þessu sinni fór fram undir stjórn Andy Burnham, nýs forsætisáðherra Bretlands, Emmanuel Macron Frakklandsforseta og Friedrich Merz Þýskalandskanslara. Gaf Úkraínuforseti starfssystkinum sínum raunsanna lýsingu á stöðu mála og var mikil áhersla lögð á að nýta vel næstu vikur til að undirbúa Úkraínumenn fyrir loftvarnir gegn harðnandi árásum Rússa. Leiðtogar á þriðja tug ríkja tóku þátt í fundinum.
Sameiginleg yfirlýsing NB8-ríkjanna og Úkraínu (á ensku)