26 ágúst 2026
/
Framtíð Ísland.is til umræðu á Tengjum ríkið
Ráðstefnan Tengjum ríkið fer fram fimmtudaginn 17. september á Hilton Nordica og í beinu streymi. Yfirskriftin í ár er „Framtíð Ísland.is“ en í erindum og vinnustofum tengdum ráðstefnunni verður áleitnum spurningum um framtíð stafrænnar opinberrar þjónustu velt upp og rætt um reynslu Íslands og annarra ríkja af örri tækniþróun, samfélagslegum áskorunum og samstarfi.
„Á Tengjum ríkið stillum við saman strengi, ræðum nýjungar og spennandi tækifæri ásamt því að kynnast því sem efst er á baugi í stafrænni opinberri þjónustu. Virkt samstarf er lykilþáttur i þeim árangri sem Ísland hefur náð í þróun stafrænnar þjónustu en við viljum gera ennþá betur,“ segir Birna Íris Jónsdóttir framkvæmdastjóri Stafræns Íslands sem skipuleggur ráðstefnuna.
Meðal fyrirlesara í ár verða Christine Bellamy starfandi aðalframkvæmdastjóri hjá Government Digital Service (GDS) í Bretlandi, Christian Bason stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður, Hjálmar Gíslason stofnandi og framkvæmdastjóri GRID, Eiríkur Nilsson stofnandi og tæknistjóri Aranja, Sigurður Þórarinsson forstöðumaður Stafrænnar heilsu og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fyrrum ráðherra og þingmaður sem nú leiðir gervigreindarverkefni Fenris Creation.
Fundarstjóri verður Gísli Ragnar Guðmundsson gervigreindarsérfræðingur hjá Almannarómi og leiðtogi New Nordics AI á Íslandi.
Í lok ráðstefnudags verða veittar viðurkenningar fyrir stafræn skref opinberra aðila. Þegar hafa þrjár stofnanir fengið viðurkenningar fyrir að stíga öll stafrænu skrefin níu; Samgöngustofa, Sjúkratryggingar og Sýslumenn en viðbúið er að fleiri bætist í hópinn í ár.
Nánari upplýsingar og miðasala á Tengjum ríkið 2026.