27 ágúst 2026

/

Aukning verðbólgu ekki drifin af opinberum gjöldum – flugfargjöld skýra helming aukningarinnar frá áramótum

{image.Description}
Hari

Verðbólga mældist 5,6% í ágúst, í takt við væntingar greinenda. Samkvæmt mælingum Hagstofunnar verður hækkun verðbólgu sl. 12 mánuði ekki rakin til hækkunar skatta eða opinberrar þjónustu.

Þrátt fyrir breytingar á skráningargjöldum við opinbera háskóla og aðrar gjaldskrárbreytingar undanfarið ár hafa skattar og opinber gjöld haft óveruleg áhrif á undanfarnar verðbólgumælingar. Í samhengi við umræðu um áhrif skatta- og gjaldahækkana á vísitölu neysluverðs innan mánaðar þarf að taka tillit til þess að gjaldskrárhækkanir hætta að hafa bein áhrif á verðbólgu að 12 mánuðum liðnum.

Mælikvarðar á 12 mánaða verðbólgu sem undanskilja annars vegar bein áhrif skatta á verðlag og hins vegar veigamestu liði opinberrar þjónustu eru nú nánast nákvæmlega þeir sömu og verðbólgan sjálf – munurinn er um eða innan við 0,1 prósentustig. Þegar lækkun virðisaukaskatts á bensín gengur til baka munu skattaáhrif vega lítillega til hækkunar ársverðbólgu, en ekki meira en að jafnaði undanfarin fjögur ár.

Sé litið til þess hvað hefur drifið hækkun verðbólgu síðan hún var lægst í lok síðasta árs er myndin svipuð: raunar hefur verðbólga án skattaáhrifa hækkað 0,3 prósentustigum meira en verðbólgan sjálf síðan á 4. ársfjórðungi 2025 og skattaáhrif þannig vegið til lækkunar verðbólgu. Það skýrist af tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti.

Þess í stað virðist hækkun verðbólgu síðan í lok síðasta árs mjög drifin af tilfallandi og/eða ytri atburðum: hækkun flugfargjalda skýrir ein og sér næstum helminginn af hækkun verðbólgu síðan þá.

„Það þarf samstillt átak til að ná verðbólgu niður og stjórnvöld eru reiðubúin til þess. Það er sameiginlegt verkefni okkar og aðila vinnumarkaðarins að ná niður vöxtum og verðbólgu, og við erum tilbúin í það samtal.“ segir Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra.