27 ágúst 2026

/

Utanríkisráðherra fundaði með forseta úkraínska þingsins

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Ruslan Stefanchuk, forseti úkraínska þingsins.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með Ruslan Stefanchuk, forseta úkraínska þingsins, í gær. Stefanchuk kom til landsins á þriðjudaginn til að sækja fund forseta þjóðþinga Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.

„Við höfum staðið þétt við bakið á úkraínsku þjóðinni í varnarbaráttunni gegn landvinningastríði Rússlands og ætlum að gera það áfram. Það var afar kærkomið að taka á móti úkraínska þingforsetanum til að árétta enn á ný staðfastan stuðning Íslands við Úkraínu og heyra frá fyrstu hendi hvernig við getum mætt þörfum úkraínsku þjóðarinnar enn frekar,“ segir Þorgerður Katrín. „Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin eru einhuga um áframhaldandi öflugan stuðning við Úkraínu, og var það undirstrikað enn og aftur um síðustu helgi á leiðtogafundi með Úkraínuforseta.“

Á fundi utanríkisráðherra og þingforsetans áréttaði hann þakklæti Úkraínubúa til íslensku þjóðarinnar. Sagði hann áframhaldandi stuðning á sviði varnarbúnaðar, mannúðaraðstoðar og efnahagsstuðnings skipta mjög miklu. Framundan séu erfiðir vetrarmánuðir vegna grimmilegra loftárása Rússa á almenna borgara og borgaralega innviði sem nú fara vaxandi.

Leiðtogar NB8-ríkja heimsóttu Kænugarð um síðustu helgi í tilefni af 35 ára afmæli endurreisnar sjálfstæðis Úkraínu. Í sameiginlegri yfirlýsingu Norðurlandanna, Eystrsaltsríkjanna og Úkraínu er órofa áframhaldandi pólitískur, varnartengdur, efnahagslegur og mannúðarlegur stuðningur við úkraínsku þjóðina áréttaður.