28 ágúst 2026
/
Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2026
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest veiðitímabil rjúpu í ár. Heimilt verður að veiða rjúpu frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum á tímabili sem ákveðið er sérstaklega innan hvers veiðisvæðis:
Austurland 23. október – 22. desember
Norðausturland 23. október – 1. desember
Norðvesturland 23. október – 17. nóvember
Suðurland 23. október – 17. nóvember
Vesturland 23. október – 1. desember
Vestfirðir 23. október – 24. nóvember
Ítrekað er að sölubann er á rjúpum og á það jafnt við um sölu til endursöluaðila og annarra.
Fyrirkomulag rjúpnaveiði í ár byggir á þeim grunni sem lagt var upp með í samvinnu hagaðila við gerð stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpnastofninn sem gerð var árið 2024. Lagt er upp með að það hafi jákvæð áhrif á bæði rjúpnastofninn og alla hagaðila
Verndarsvæði verður á Reykjanesi líkt og undanfarin ár.
Er veiðimönnum bent á að kynna sér takmarkanir á veiðum á friðlýstum svæðum og eru þeir hvattir til góðrar umgengi um náttúru landsins.