03 september 2026

/

Almannatryggingar í 90 ár: Opin ráðstefna í Hörpu

{image.Description}

Níutíu ára sögu almannatrygginga á Íslandi verður fagnað með opinni ráðstefnu í Hörpu þann 30. september nk. Árið 1936 tóku lög um alþýðutryggingar gildi og sama ár var Tryggingastofnun ríkisins sett á laggirnar. Þar með var grunnur lagður að því almannatryggingakerfi sem landsmenn búa við í dag. Með tímanum varð Tryggingastofnun ríkisins síðan að Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum Íslands og Vinnumálastofnun.

Saga, þróun og framtíð kerfisins

Á ráðstefnunni verður fjallað um almannatryggingar á Íslandi og farið yfir sögu, þróun og framtíð kerfisins. Þá verður fjallað um samspil almannatrygginga við atvinnulíf, stéttarfélög, lífeyrissjóði og rannsóknir á sviðinu. Á ráðstefnunni verða bæði innlendir og erlendir gestir og meðal annars flutt erindi frá OECD, ISSA alþjóðasamtökum almannatryggingastofnana og félags- og fjölskylduráðuneyti Möltu. Í pallborði verða einnig forstjórar almannatryggingastofnana á Norðurlöndunum.

Að ráðstefnunni standa Tryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands og Vinnumálastofnun.

Ráðstefnan er öllum opin en skráning er nauðsynleg og viðburðinum verður ekki streymt.

Dagskrá

Kl. 9.00 - Setning

Félags- og húsnæðismálaráðherra flytur ávarp.

Heilbrigðisráðherra flytur ávarp.

Kl. 9.15 - Stjórnsýslan og hagaðilar

Forstjórar Tryggingastofnunar, Sjúkratrygginga Íslands og Vinnumálastofnunar flytja erindi um helstu áskoranir og tækifæri á sínu málefnasviði.

Pallborðsumræður með hagaðilum þar sem rætt verður um samstarf, þjónustu við notendur og framtíðarsýn velferðarkerfisins.

Kl. 10.45 – Kaffihlé

Kl. 11.15 – Aðkoma og samspil atvinnulífs, lífeyrissjóða, stéttarfélaga og fræðasamfélags

Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins, Landssamtaka lífeyrissjóða, ASÍ og Háskóla Íslands flytja erindi.

Kl. 12.15 - Hádegisverður

Kl. 13.00 - Staðan í alþjóðlegu samhengi – Reynsla, þekking og framtíð almannatrygginga

OECD: The future of social protection and social policy. ISSA: Social security, navigating change for success. Ministry for social policy and the family, Malta: Development of social insurance in Malta, evolution to present day, and perspectives on the future of social protection and social policy.

Kl. 14.30 – Kaffihlé

Kl. 14.40 – Pallborðsumræður með fulltrúum norrænna almannatryggingastofnana

Ráðstefnulok og samantekt.

Kl 16 – Léttar veitingar og samverustund

Athugið að eftir kl. 13.00 fer dagskráin fram á ensku.

Sjá einnig: