02 september 2026
/
Farsóttanefnd skipuð samkvæmt nýjum sóttvarnalögum
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað farsóttanefnd samkvæmt 8. gr. nýrra laga um sóttvarnir nr. 40/2026 sem tóku gildi í gær. Farsóttanefnd skal vera öðrum sóttvarnayfirvöldum til ráðgjafar og aðstoðar um viðbrögð við hættulegum sjúkdómum og vettvangur fyrir samhæfingu aðgerða innan heilbrigðiskerfisins og almannavarnakerfisins gegn sjúkdómum sem eru samfélagslega hættulegir.
Ráðherra skipar nefndina til fjögurra ára í senn. Í samræmi við lögin eiga þar sæti sóttvarnalæknir sem er formaður nefndarinnar og landlæknir. Auk þeirra eiga sæti í nefndinni einstaklingur tilnefndur af ríkislögreglustjóra sem skal hafa þekkingu á almannavörnum, einn eftir tilnefningu Landspítala, sem skal hafa þekkingu á smitsjúkdómum, einn eftir tilnefningu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, einn eftir tilnefningu Sjúkrahússins á Akureyri og einn eftir tilnefningu opinberra heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni.
Í farsóttanefnd sitja:
- Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir, formaður
- María Heimisdóttir landlæknir
- David Dominic Lynch tilnefnd af ríkislögreglustjóra
- Agnar Bjarnason tilnefndur af Landspítala
- Nanna S. Kristinsdóttir, tilnefnd af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
- Rut Guðbrandsdóttir, tilnefnd af Sjúkrahúsinu á Akureyri
- Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, tilnefnd af heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni
Varamenn í farsóttanefnd eru Guðrún Lísbet Níelsdóttir frá Ríkislögreglustjóra, Guðrún Svanborg Hauksdóttir frá Landspítala, Ansgar B. Jones frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Guðjón Kristjánsson frá Sjúkrahúsinu á Akureyri og Eyjólfur Þorkelsson fulltrúi heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni.
Sóttvarnalög nr. 40/2026 voru samþykkt á Alþingi 21. apríl síðastliðinn eftir umfangsmikla endurskoðun löggjafar um sóttvarnir. Fjallað er um helstu breytingar á skipulagi sóttvarna í tilkynningu sóttvarnalæknis um gildistöku laganna í gær, 1. september.