01 september 2026
/
Fjölgun hjúkrunarrýma - gjörbreytt staða á Landspítala
„Staðan á Landspítala varðandi sjúklinga með færni og heilsumat hefur ekki verið betri það sem af er þessari öld.“ Svohljóðandi tölvupóstur barst heilbrigðisráðuneytinu frá Landspítala í gær.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur var kveðið á um að ríkisstjórnin myndi leiða þjóðarátak í umönnun eldra fólks, m.a. með fjölgun hjúkrunarrýma og eflingu heimahjúkrunar.
„Frá fyrsta degi höfum við unnið markvisst að því að hraða uppbyggingu hjúkrunarrýma og skapa fleiri úrræði fyrir aldraða sem annars þyrftu jafnvel að liggja á göngum Landspítala. Nú sjáum við árangurinn sem er gríðarlega mikilvægur, bæði fyrir þá einstaklinga sem í hlut eiga og fyrir alla starfsemi spítalans. Að tryggja öldruðum viðeigandi þjónustu og öryggi eftir sjúkrahúslegu er eilífðarverkefni sem við munum áfram leggja mikla áherslu á“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
Síðastliðna 12 mánuði hafa verið opnuð 244 ný rými fyrir aldraða; 64 hjúkrunarrými í Boðaþingi í Kópavogi, 80 hjúkrunarrými á Nesvöllum í Reykjanesbæ og 100 rými í Urðarhvarfi sem notuð eru sem skammtímahjúkrunarrými. Nýlega voru Vífilsstaðir opnaðir aftur eftir umtalsverðar endurbætur á húsnæðinu. Þar eru 48 rými. Þá er fyrirhugað að opna 154 ný hjúkrunarrými árið 2027 og 251 árið 2028.
Á næstu vikum verður svo hjúkrunarheimilið Hlévangur í Reykjanesbæ opnað að nýju eftir endurbætur á húsnæði og aðstöðu. Mörg fleiri uppbyggingarverkefni eru í undirbúningi eða hafin, líkt og fram kemur í framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila til ársins 2030.
Þá verður ný bráðamatsdeild við bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi opnuð í haust sem mun létta álagi af bráðamóttökunni, bæta enn flæði sjúklinga og þjónustu við sjúklinga.
„Það hefur sannarlega rofað nokkuð til á síðustu vikum og fjöldi einstaklinga með samþykkt færni- og heilsumat hefur sjaldan verið lægri ef litið er til undanfarinna ára. Það er fyrst og fremst gleðilegt fyrir þá einstaklinga sem nú hafa fengið varanlega og fullnægjandi búsetu sem mætir þörfum þeirra og styður við lífsgæði og sjálfstæði.
Reynslan sýnir þó að þessi staða getur breyst til hins verra á skömmum tíma og verðum við að vera undir það búin. Við munum áfram leggja ríka áherslu á að efla bráðaþjónustu innan Landspítala og munum skapa fjölbreyttari úrræði á komandi mánuðum. Sá mikli fjöldi einstaklinga sem hefur þurft að vistast langdvölum á Landspítala vegna skorts á viðeigandi úrræðum utan spítalans hefur haft veruleg áhrif á getu okkar til að þróa og efla þjónustu stofnunarinnar.
Þessi jákvæða þróun eru því ekki aðeins gleðifréttir fyrir þá einstaklinga sem nú hafa fengið viðeigandi búsetu, heldur einnig fyrir alla þá sem þurfa á þjónustu Landspítala að halda og fyrir okkar frábæra starfsfólk, sem hefur sýnt einstaka þrautseigju og úthald við krefjandi aðstæður“ segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala.