07 september 2026
/
Hækkun lágmarksverðs mjólkur
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.
Eftirfarandi verðbreytingar taka gildi þann 11. september 2026.
- Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 1,39% úr 146,17 kr./ltr í 148,20 kr./ltr.
- Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar um 1,42%.
Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í mars 2026. Verðlagsgrundvöllur kúabús hækkar um 1,39% frá mars til júní 2026.
Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um sem nemur veginni kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Síðasta verðlagning byggði á verðlagi í mars 2026 og er reiknuð hækkunarþörf vinnslu- og dreifingarkostnaðar 1,45%.
Breytingar á lágmarksverði og heildsöluverði mjólkurvara byggja á kostnaðarbreytingum frá mars til júní 2026 en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 1,8%. Helstu áhrifaþættir til verðhækkunar samkvæmt reiknilíkönum eru gjaldaliðir launa, fjármagnskostnaðar, fóðurs, umbúða, íblöndunarefna og orkunotkunar.