13. ágúst 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál 331/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 331/2026

Fimmtudaginn 13. ágúst 2026

A gegn Garðabæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 8. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Garðabæjar, dags. 8. maí 2026, um að synja umsókn hennar um félagslegt leiguhúsnæði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 11. apríl 2026, sótti kærandi um félagslegt leiguhúsnæði hjá Garðabæ. Á afgreiðslufundi húsnæðismála Garðabæjar 24. apríl 2026 var umsókn kæranda synjað. Kærandi áfrýjaði þeirri ákvörðun til velferðarráðs Garðabæjar sem staðfesti ákvörðunina á fundi þann 8. maí 2026.

Kæra bars úrskurðarnefnd velferðarmála 8. maí 2026. Með bréfi, dags. 12. maí 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Garðabæjar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Garðabæjar barst 27. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. maí 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála kemur fram að kærandi óski eftir endurskoðun á ákvörðun velferðarráðs Garðabæjar um synjun á umsókn hennar um félagslegt leiguhúsnæði. Kærandi sé einstæð móðir með tvö börn og starfi í skóla. Auk þess búi móðir kæranda með þeim en hún sé ekki í vinnu. Þrátt fyrir fasta vinnu sé húsnæðiskostnaður kæranda mjög hár og greiði hún um 400.000 kr. í leigu á mánuði. Eftir leigugreiðslur sé erfitt að standa undir framfærslu fjölskyldunnar. Kærandi sé einnig með sykursýki sem hafi áhrif á heilsu hennar og daglegt líf. Kærandi telji að ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til félagslegra og fjárhagslegra aðstæðna hennar og þarfa barna hennar við afgreiðslu málsins. Kærandi óski eftir því að málið verið tekið til nýrrar og ítarlegrar skoðunar.

III.  Sjónarmið Garðabæjar

Í greinargerð Garðabæjar kemur fram að umsókn kæranda um almennt félagslegt leiguhúsnæði hafi borist velferðarsviði Garðabæjar 11. apríl 2026. Umsóknin hafi verið metin til fjögurra stiga. Samkvæmt f. lið 1. mgr. 5. gr. reglna nr. 962/2025 um félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ verði umsókn einstaklings með barn að vera metin til fimm stiga eða meira til að vera samþykkt á biðlista. Umsókn kæranda hafi verið synjað af þessum sökum. Stig séu gefin eftir matsviðmiði.

Fyrsti flokkur matsviðmiðsins fjalli um tekjur. Miðað sé við tekjur umsækjenda fyrir síðastliðið almanaksár samkvæmt skattframtali. Samkvæmt tekjuupplýsingum kæranda hafi tekjur hennar verið 6.949.047 kr. árið 2025. Eignir kæranda árið 2025 hafi verið alls 1.257.421 kr. samkvæmt skattframtali en skuldir hennar hafi numið alls 154.768 kr. Samkvæmt matsviðmiðinu fái einstaklingur með tekjur hærri en 6.299.200 kr. á árinu 2025 núll stig og því hafi kærandi ekki fengið nein stig í flokki eitt. Annar flokkur matsviðmiðsins fjalli um stöðu umsækjanda og þar sé gefið eitt stig ef umsækjandi þiggi örorkubætur eða endurhæfingarlífeyri, sé ellilífeyrisþegi, hafi verið atvinnulaus um langt skeið (18 mánuði eða lengur), hafi haft langvarandi skerta starfsgetu (12 mánuði eða lengur) eða tvö stig ef umsækjandi hafi viðurkennda fötlun sem geti haft áhrif á getu til framfærslu. Af gögnum málsins hafi mátt ráða að ekkert framangreint hafi átt við um kæranda sem sé í vinnu. Kærandi hafi því ekki fengið nein stig í flokki tvö. Þriðji flokkur sem fjalli um maka eigi ekki við um kæranda sem sæki um sem einstaklingur. Fjórði flokkur matsviðmiðsins fjalli um börn og hafi kærandi fengið tvö stig þar sem hún sé með skráð lögheimili barna. Fimmti flokkur matsviðmiðsins um sérstakar aðstæður barna eigi ekki við í málinu og því hafi kærandi ekki fengið nein stig fyrir flokk fimm. Sjötti flokkurinn fjalli um húsnæðisstöðu og hafi kærandi fengið eitt stig þar fyrir íþyngjandi húsnæðiskostnað. Sjöundi flokkur matsviðmiðsins fjalli um aðrar félagslegar aðstæður umsækjanda/fjölskyldu og þar segi að stig sé gefið ef sérstakar aðstæður umsækjanda hafi samkvæmt mati ráðgjafa velferðarsviðs afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu eða færni til að afla sér húsnæðis þrátt fyrir stuðning velferðarsviðs eða annarra aðila. Það hafi verið mat starfsmanna velferðarsviðs að engum slíkum aðstæðum væri til að dreifa í tilfelli kæranda og þar af leiðandi hafi kærandi ekki fengið nein stig fyrir flokk sjö. Kærandi hafi fengið eitt stig fyrir flokk átta um tímalengd lögheimilis umsækjanda í sveitarfélaginu en engin stig fyrir flokk níu sem fjalli um aldur umsóknar. Heildarstigafjöldi kæranda hafi því verið eins og áður segi fjögur stig og hafi umsókninni því verið synjað á afgreiðslufundi húsnæðismála 16. apríl 2026.

„Umsókn A, um félagslegt leiguhúsnæði, dags. 11.04.26. Umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði f-liðar 1. mgr. 5. gr. reglna Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði nr. 962/2025 þar sem segir að umsókn einstaklings með börn þurfi að vera metin til 5 stiga eða meira. Umsókn umsækjanda hefur verið metin til 4 stiga. Umsókn um félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ er því synjað.“

Kærandi hafi andmælt niðurstöðunni í tölvupósti, dags. 27. apríl 2026, og hafi óskað eftir því að ákvörðunin yrði endurskoðuð. Í þeim pósti hafi kærandi tjáð starfsfólki velferðarsviðs að hún hafi greinst með sykursýki af tegund eitt og sé insúlínháð. Beiðni um endurskoðun hafi verið lög fyrir velferðarráð á grundvelli þeirra nýju upplýsinga sem hafi komið fram í erindi kæranda til velferðarsviðs með fyrrgreindum tölvupósti. Á fundi velferðarráðs 8. maí 2026 hafi ákvörðun velferðarsviðs verið staðfest.

„Með hliðsjón af reglum Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði, fyrirliggjandi gögnum og jafnræðissjónarmiðum er afgreiðsla velferðarsviðs staðfest.“

Í læknisvottorði, dags. 27. apríl 2026, komi fram að sykursýki af tegundinni eitt geti haft áhrif á daglegt líf og starfsgetu. Aldrei hafi þó komið fram í samskiptum sveitarfélagsins við kæranda að starfsgeta hennar hafi verið skert vegna sjúkdómsins. Þá komi ekki fram í vottorðinu að kærandi sé óvinnufær vegna sjúkdómsins. Af þessum sökum hafi ekki þótt unnt að gefa kæranda stig fyrir flokk tvö í matsviðmiðinu um stöðu umsækjanda þar sem hún hafi hvorki sótt um örorku né endurhæfingarlífeyri og engar upplýsingar liggi fyrir um að starfsgeta kæranda sé í raun skert þó að vottað sé að sykursýki af tegundinni eitt geti almennt leitt til skertrar starfsgetu. Þá skuli ítrekað að til þess að einstaklingur hljóti stig fyrir skerta starfsgetu samkvæmt matsviðmiði reglna nr. 962/2025 verði starfgeta að hafa verið skert í 12 mánuði eða lengur.

Þá hafi starfsfólk velferðarsviðs ekki heldur talið unnt að veita kæranda stig í flokki sjö um aðrar félagslegar aðstæður umsækjanda/fjölskyldu þar sem ekki hafi verið séð að sykursýki af tegundinni eitt sé almennt til þess fallin að hafa afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu kæranda eða færni hennar til að afla sér húnsæðis með stuðningi velferðarsviðs eða annarra aðila. Kæranda, rétt eins og öðrum íbúum sveitarfélagsins, bjóðist ávallt sá kostur að leita til félagsráðgjafa til þess að fá ráðgjöf um sín mál.

Með vísan til framangreinds telji Garðbær að rétt sé að staðfesta ákvörðun velferðarsviðs Garðabæjar um synjun umsóknar kæranda um félagslegt leiguhúsnæði.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Garðabæjar, dags. 8 maí 2026,  um að synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði. Umsókninni var synjað á þeirri forsendu að skilyrði 5.gr. reglna sveitarfélagsins um félagslegt leiguhúsnæði væri ekki uppfyllt.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við húsnæðismál, sbr. 1. mgr. 2. gr.

Í XII. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um húsnæðismál. Þar segir í 1. mgr. 45. gr. að sveitarstjórnir skuli, eftir því sem kostur er og þörf er á, tryggja framboð af leiguhúsnæði, félagslegu kaupleiguhúsnæði og/eða félagslegum eignaríbúðum handa þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Samkvæmt 46. gr. laganna skulu félagsmálanefndir sjá til þess að veita þeim fjölskyldum og einstaklingum, sem ekki eru færir um það sjálfir, úrlausn í húsnæðismálum til að leysa úr bráðum vanda á meðan unnið er að varanlegri lausn.

Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á húsnæðismálum einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í reglum Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita, sbr. XII. kafla laga nr. 40/1991. Í 1. gr. reglnanna kemur fram að félagslegar leiguíbúðir séu ætlaðar fjölskyldum og einstaklingum sem þurfi sérstaka aðstoð til að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra tekna, þungrar framfærslubyrðar og/eða annarra félagslegra erfiðleika og fjárhags- og félagslegar aðstæður þeirra skuli metnar út frá þeim viðmiðum sem kveðið sé á um í reglunum.

Í 5. gr. reglnanna er að finna skilyrði fyrir því að umsókn um almennt félagslegt leiguhúsnæði verði samþykkt á biðlista og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a. til h. liðum 1. mgr. ákvæðisins.

Samkvæmt f. lið 1. mgr. 5. gr. skulu umsóknir metnar samkvæmt ákveðnum matsviðmiðum, sbr. fylgiskjal með reglunum. Við lok mats eru reiknuð stig fyrir hvern þátt fyrir sig. Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista þarf umsókn einstaklings með barn/börn að vera metin til að lágmarki fimm stiga eða meira.

Í þeim þætti matsins er varðar tekjur umsækjanda fékk kærandi ekkert stig en samkvæmt fyrirliggjandi skattframtali vegna tekjuársins 2025 námu tekjur hennar samtals 6.949.047 kr. Samkvæmt fyrirliggjandi matsblaði Garðabæjar er miðað við að árstekjur umsækjanda séu undir 5.511.800 kr. til þess að fá þrjú stig og frá 5.511.801 kr. til 6.299.200 kr. til þess að fá tvö stig. Fyrir stöðu umsækjanda fékk kærandi ekkert stig þar sem hún er í vinnu og kærandi fékk ekkert stig vegna stöðu maka þar sem það á ekki við. Í þeim lið matsins sem varðar börn fékk kærandi tvö stig, eða hámarksfjölda stiga sem í boði eru. Kærandi fékk ekkert stig fyrir sérstakar aðstæður barna en til að fá tvö stig þurfa að vera verulegir erfiðleikar og málefni barns til umfangsmikillar vinnslu í félagsþjónustu eða hjá barnavernd. Húsnæðisaðstaða kæranda var réttilega metin til eins stigs sem úrskurðarnefndin gerir ekki athugasemd við. Sú stigagjöf fellur undir matsviðmiðið: „Íþyngjandi húsnæðiskostur: Húsnæðiskostur að frádregnum húsnæðisbótum og sérstökum húsnæðisstuðningi er hærri en 30% af heildartekjum heimilis (brúttótekur).“ Þá fékk kærandi engin stig fyrir aðrar félagslegar aðstæður sem úrskurðarnefndin gerir ekki athugasemd við, enda verður ekki séð að þær aðstæður sem þar eru tilgreindar eigi við. Fyrir tímalengd lögheimilis umsækjanda í sveitarfélaginu fékk kærandi eitt stig. Kærandi fékk ekkert stig fyrir aldur umsóknar þar sem um nýja umsókn var að ræða.

Samkvæmt framangreindu var umsókn kæranda metin til fjögurra stiga og uppfyllti hún því ekki skilyrði f. liðar 1. mgr. 5. gr. reglna Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði.

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur yfirfarið gögn málsins og telur ekki ástæðu til að gera athugasemd við framangreint mat Garðabæjar. Ekki verður annað ráðið en að sveitarfélagið hafi lagt fullnægjandi mat á aðstæður kæranda og er niðurstaða þess mats í samræmi við reglur sveitarfélagsins.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Garðabæjar, dags. 8. maí 2026, um að synja umsókn A, um félagslegt leiguhúsnæði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir