9. júlí 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 202/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 205/2026

Fimmtudaginn 9. júlí 2026

A gegn Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 15. janúar 2026. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið synjað þar sem umbeðin gögn hefðu ekki enn borist.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 12. mars 2026. Með bréfi, dags. 17. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 31. mars 2026 þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Því bæri að fallast á kröfu kæranda um að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun og samþykkja umsókn hans um atvinnuleysisbætur. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 1. apríl 2026, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með tölvupósti til kæranda 12. maí 2026. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur með vísan til þess að umbeðin gögn hefðu ekki borist. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Því bæri að fallast á kröfu kæranda um að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun og samþykkja umsókn hans um atvinnuleysisbætur.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kveður úrskurðarnefndin upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Þar sem Vinnumálastofnun féllst á að samþykkja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir