13. ágúst 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 292/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 292/2026

Fimmtudaginn 13. ágúst 2026

A gegn Vestmannaeyjabæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 21. apríl 2026, kærði B, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vestmannaeyjabæjar, dags. 13. apríl 2026, vegna umsóknar hans um fjárhagsaðstoð og ákvörðun sveitarfélagsins um að synja beiðni hans um fatastyrk.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi hefur þegið fjárhagsaðstoð frá Vestmannaeyjabæ frá árinu 2023. Með umsókn, dags. 27. mars 2026, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir marsmánuð 2026. Þann 30. mars 2026 var samþykkt að veita kæranda 115.069 kr. í fjárhagsaðstoð, eða hálfan kvarða. Með símtali 1. apríl 2026 óskaði kærandi eftir fatastyrk frá Vestamannaeyjabæ að fjárhæð 300.000 kr. Kæranda var tjáð að slíkt samræmdist ekki reglum sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð. Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja staðfesti framangreindar ákvarðanir á fundi 9. apríl 2026 og var kæranda kynnt sú ákvörðun með bréfi, dags. 13. apríl 2026.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 21. apríl 2026. Með bréfi, dags. 28. apríl 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vestmannaeyjabæjar ásamt gögnum málsins. Greinargerð sveitarfélagsins barst úrskurðarnefndinni 7. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. maí 2026. Athugasemdir bárust ekki. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 30. júní 2026, var óskað eftir frekari gögnum frá Vestmannaeyjabæ vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 30. júní og 1. júlí 2026.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi sé mjög veikur andlega og búi hjá bróður sínum með tilheyrandi kostnað og á hans ábyrgð. Bróðir kæranda sé einhverfur og eigi yfir höfuð nóg með að sjá fyrir sjálfum sér. Kærandi kunni ekki að fara með fjármál og bróðir hans sitji því uppi með að borga allt undir hann hvort sem hann vilji eða ekki. Bróðir kæranda fari út klukkan sjö á morgnana til vinnu og komi heim að ganga sex að kvöldi. Bróðir kæranda hafi ekki bolmagn til að sjá alfarið fyrir kæranda. Áður hafi kærandi séð fyrir sér sjálfur, allavega fyrstu tvær vikur hvers mánaðar en með bótaskerðingunni sé hann orðinn peningalaus áður en fyrsta vika mánaðarins sé liðin.

III.  Sjónarmið Vestmannaeyjabæjar

Í greinargerð Vestmannaeyjabæjar kemur fram að kærandi hafi verið í þjónustu hjá félagsþjónustu sveitarfélagsins síðan í mars 2023 en þá hafi hann flutt til Vestmannaeyja frá C. Í kæru og gögnum komi ekki nógu skýrt fram hvað sé verið að kæra og hvaða svörum sé óskað eftir í greinagerð og því verði mál hans reifað.

Kærandi hafi verið á fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins síðan í mars 2023. Ítrekað hafi verið reynt að aðstoða hann við að komast í einhvers konar endurhæfingu, t.d. í Virk, geðheilsuteymi HSU, meðferð við fíknivanda, sálfræðiviðtöl o.fl. Virk og geðheilsuteymi hafi ekki náð lengra hjá kæranda þar sem hann hafi ekki getað skilað hreinni fíkniefnaprufu og sýnt fram á vilja til edrúmennsku, endurhæfingar og bata. Að mati kæranda eigi hann ekki við fíknivanda að stríða og telji sig vera edrú þrátt fyrir að nota kannabis reglulega. Varðandi almenna endurhæfingu hafi hann ekki viljað sinna því þegar rætt hafi verið um ýmis úrræði því tengdu. Samkvæmt kæranda sé hann að sinna eigin endurhæfingu sjálfur, byggi sig upp með aðstoð guðs og fyrirlestrum á Youtube. Búið sé að fara yfir það með kæranda að Tryggingastofnun myndi ekki samþykkja slíka endurhæfingu.

Kærandi hafi því þegið fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu í rúm þrjú ár sem sé ekki æskileg staða. Kærandi sé mikill sjúklingur og sveitarfélagið telji mikilvægt að koma honum í rétt kerfi en samstarfsvilji til þess hafi ekki verið til staðar. Kærandi segist ekki treysta læknum, sálfræðingum eða öðru fagfólki. Að mati starfsmanna sveitarfélagsins sé mjög mikilvægt að kærandi þiggi heilbrigðisþjónustu og geðheilbrigðisþjónustu og sé rétt meðhöndlaður við sínum veikindum.

Kærandi hafi mestmegnis búið inn á bróður sínum síðan þeir hafi flutt til Vestmannaeyja en sé á biðlista eftir félagslegu húsnæði. Ráðgjafi félagsþjónustu hafi aðstoðað kæranda við að fá leigða íbúð á almennum markaði og þá hafi hann flutt frá bróður sínum. Því miður hafi það ekki gengið. Kæranda hafi fljótlega verið sagt upp leigunni og hann þá flutt aftur inn á bróður sinn. Í reglum sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð sem hafi verið samþykktar í apríl 2025 komi fram að framfærslugrunnur einstaklinga sem deili heimili með öðrum og njóti hagræðis vegna þessa hafi stuðulinn 0,5. Einnig sé heimild til skerðinga sé einstaklingur ekki að sinna því sem lagt sé upp með í félagslegri ráðgjöf. Kærandi hafi því miður ekki sinnt ráðgjöf starfsmanna síðastliðin ár. Kærandi hefði með réttu bara átt rétt á hálfum framfærslukvarða frá apríl 2025 þar sem hann búi frítt hjá bróður sínum.

Vestmannaeyjabær hafi nýlega tekið í gildi að umsóknir um fjárhagsaðstoð færi í gegnum island.is. Kærandi og aðrir hafi verið beðnir um að sækja framvegis um þar í hverjum mánuði. Útskýrt hafi verið fyrir kæranda að nýjar reglur og nýtt kerfi hefði tekið gildi og þar sem hann byggi frítt hjá bróður sínum ætti hann aðeins rétt á hálfum kvarða. Einnig hafi verið rætt við kæranda að sveitarfélagið myndi aðstoða hann við að sækja um sjúkra- og endurhæfingagreiðslur. Vilji sé til þess að aðstoða kæranda við að komast í geðheilsuteymið, virkni og rútínu. Kærandi hafi enn og aftur verið beðinn um að panta tíma hjá lækni upp á grunnvottorð um að óvinnufærni hans yrði staðfest og sent inn til Tryggingastofnunar ríkisins svo hægt væri að halda umsóknarferli um sjúkra- og endurhæfingargreiðslum áfram. Einnig hafi verið reynt að aðstoða kæranda við að fá hærri framfærslu til að auka líkur hans á að hann kæmist út á leigumarkaðinn aftur í sjálfstæða búsetu og gæti staðist þær greiðslur. Kærandi hafi ekki verið tilbúinn í þessa vinnu og erfitt hafi verið að ná samtali við hann síðan þá. Kærandi hafi sýnt starfsmönnum dónaskap og ógnandi hegðun þar sem nú í tvígang hafi þurft að kalla til lögreglu þar sem hann hafi gengið berserksgang um afgreiðslu félagsþjónustu, skvett kaffi á starfsmann, barið í gler í afgreiðslu og reynt að brjóta sér leið inn. Kærandi hafi verið ósáttur við það að fá ekki meiri pening sem og að vera synjað um 300.000 kr. fatastyrk sem hann hafi óskað eftir.

Kærandi hafi óskað eftir að beiðni hans um undanþágu frá reglunum þannig að hann fengi fullan framfærslukvarða sem og beiðni hans um fatastyrkinn færi fyrir fund Fjölskyldu- og tómstundaráðs. Það hafi verið tekið fyrir á fundi ráðsins þann 9. apríl 2026 þar sem því hafi verið hafnað og ákvörðun starfsmanna staðfest þar sem hún hafi samræmst reglum sveitarfélagsins. Kæranda hafi verið sent bréf þess efnis og bent á kæruleið til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Staðan í dag sé sú að bróðir kæranda sé kominn með umboð og samskiptin hafi nú að mestu farið í gegnum hann. Bróðir kæranda sé einnig að reyna að aðstoða hann við að þiggja þjónustu, fá aðstoð sveitarfélagsins, heilbrigðiskerfisins og vinna í sínum veikindum. Samkvæmt bróður kæranda fari kærandi daglega í geðrof og hafi rústað íbúð bróður síns við að reka út illa anda og djöfla. Bróðir kæranda hafi fengið hann til samstarfs um tilvísun í geðheilsuteymið sem væri þá hluti af endurhæfingu. Búið sé að gera endurhæfingaráætlun fyrir kæranda og senda inn til Tryggingastofnunar og beðið sé eftir niðurstöðu þaðan.

Ljóst sé að kærandi glími við alvarlegan geðrænan vanda sem og fíknivanda en starfsmenn félagsþjónustu séu öll af vilja gerð varðandi að aðstoða hann með veikindin og fjárhagslega stöðu. Kærandi sé einn af þeim sem virðist lenda á milli í kerfinu, fái ekki samþykkta örorku þar sem endurhæfing teljist ekki fullreynd en sé of veikur til að fara í endurhæfingu og talinn óendurhæfanlegur.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vestmannaeyjabæjar um að greiða kæranda fjárhagsaðstoð miðað við hálfan kvarða og ákvörðun sveitarfélagsins um að synja beiðni hans um fatastyrk. Verður fyrst vikið að ákvörðun um greiðslu fjárhagsaðstoðar.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr.

Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 1. gr. reglna Vestmannaeyjabæjar um fjárhagsaðstoð er kveðið á um lagagrundvöll fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Í 1. mgr. 2. gr. reglnanna kemur fram sama grundvallarregla og í 19. gr. laga nr. 40/1991 að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Þá segir í 2. mgr. 2. gr. að umsækjendum um fjárhagsaðstoð sé skylt að leita sér að atvinnu og taka vinnu sem bjóðist nema því aðeins að veikindi, örorka, hár aldur eða aðrar gildar ástæður hamli því. Fjárhagsaðstoð skuli veitt fólki í tímabundnum erfiðleikum og sé hugsuð sem aðstoð við einstaklinga og fjölskyldur til að mæta grunnþörfum þeirra.

Í 11. gr. reglnanna er kveðið á um upphæðir fjárhagsaðstoðar. Þar segir í 1. mgr. að fjárhagsaðstoð til einstaklings 18 ára og eldri taki mið af útgjöldum vegna daglegs heimilishalds og geti numið allt að 220.252 kr. á mánuði. Samkvæmt 3. mgr. 11. gr. hefur framfærslugrunnur einstaklinga sem deila heimili með öðrum og njóta hagræðis vegna þessa stuðulinn 0,5, eða 110.126 kr. á mánuði. Samkvæmt 4. mgr. 11. gr. breytast framangreindar upphæðir í janúar ár hvert samkvæmt samþykkt Fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja hverju sinni og almennt með hliðsjón af hækkun neysluvísitölu milli ára. Fyrir liggur að fjárhagsaðstoð til einstaklings á árinu 2026 getur verið allt að 230.138 kr.

Óumdeilt er að kærandi býr hjá bróður sínum og hefur fengið samþykkta fjárhagsaðstoð miðað við þær aðstæður, eða 115.069 kr. á mánuði. Sú ákvörðun er í samræmi við framangreint ákvæði 3. mgr. 11. gr. reglna Vestmannaeyjabæjar um fjárhagsaðstoð. Að því virtu er ákvörðun Vestmannaeyjabæjar um greiðslu fjárhagsaðstoðar til kæranda, staðfest.

Kemur þá til skoðunar ákvörðun sveitarfélagsins um að synja beiðni kæranda um fatastyrk.

Í IV. kafla reglna Vestmannaeyjabæjar um fjárhagsaðstoð er kveðið á um heimildir vegna sérstakra aðstæðna. Er þar meðal annars um að ræða aðstoð til foreldra vegna barna á þeirra framfæri, fjárhagsaðstoð til greiðslu sérfræðiaðstoðar, aðstoð vegna meðferðar við fíknivanda, styrk vegna húsbúnaðar og áfallaaðstoð, svo eitthvað sé nefnt.

Við mat á því hvort styrkur vegna fatakaupa falli undir reglur Vestmannaeyjabæjar um fjárhagsaðstoð verður að líta til markmiðs og gildissviðs reglnanna. Reglurnar lúta að því að tryggja einstaklingum lágmarksframfærslu, stuðla að félagslegri virkni og auðvelda þátttöku í samfélaginu. Ekki verður séð af orðalagi reglnanna eða markmiðsákvæðum að þær taki til kostnaðar vegna fatakaupa. Þegar af þeirri ástæðu er ákvörðun sveitarfélagsins um að synja beiðni kæranda um fatastyrk, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vestmannaeyjabæjar, dags. 13. apríl 2026, um greiðslu fjárhagsaðstoðar til A, er staðfest. Ákvörðun sveitarfélagsins um að synja beiðni kæranda um fatastyrk er einnig staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir