Mál nr. 333/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 333/2026
Fimmtudaginn 13. ágúst 2026
A gegn Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 9. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 9. apríl 2026, um mánaðarlegar greiðslur til hans vegna fæðingar barns.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 8. apríl 2026, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna barns sem fæddist þann X 2025. Kæranda var kynnt greiðsluáætlun með ákvörðun, dags. 9. apríl 2026, þar sem fram kom að mánaðarleg greiðsla til hans yrði 275.688 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof. Undir rekstri málsins var ákvörðunin endurskoðuð og fjárhæðin hækkuð í 406.716 kr. með greiðsluáætlun, dags. 27. maí 2026.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. maí 2026. Með bréfi, dags. 12. maí 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst með bréfi, dags. 1. júní 2026, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 3. júní 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi, eftir að hann hafi kynnt sér útreikning Fæðingarorlofssjóðs, tekið eftir því að við ákvörðun meðaltekna hafi verið miðuð við tímabil sem hafi hafist í febrúar 2024. Hins vegar hafi lögleg dvöl kæranda á Íslandi ekki hafist fyrr en 3. júní 2024. Af þeim sökum hafi kærandi ekki haft raunhæfa eða lagalega möguleika á að stunda atvinnu eða afla tekna fyrir þann tíma. Að telja þetta tímabil með, þar sem tekjur hafi ekki verið neinar, hafi veruleg áhrif á útreikning meðaltekna og þar með upphæð greiðslna. Með hliðsjón af framangreindu óski kærandi vinsamlegast eftir því að útreikningur greiðslna til hans verði endurskoðaður með tilliti til þess hvenær hann hafi fengið heimild til dvalar og atvinnu á Íslandi. Jafnframt óski kærandi eftir því að greiðslur verði endurreiknaðar með því að undanskilja tímabilið þegar kærandi hafi ekki haft lagalega heimild til að starfa.
III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs
Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærandi hafi með umsókn, dags. 8. apríl 2026, sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna barns sem hafi fæðst X 2025.
Þá hafi legið fyrir upplýsingar úr skrám skattyfirvalda og Þjóðskrá Íslands. Kæranda hafi verið send greiðsluáætlun, dags. 9. apríl 2026, þar sem fram hafi komið að umsókn hans um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hefði verið samþykkt og að mánaðarleg greiðsla til hans miðað við 100% fæðingarorlof yrði 275.688 kr..
Í 1. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof sé kveðið á um gildissvið laganna. Þar segi að lögin taki til réttinda foreldra á innlendum vinnumarkaði til fæðingar- og foreldraorlofs. Þau eigi við um foreldra sem séu starfsmenn og/eða sjálfstætt starfandi. Samkvæmt 1. mgr. 21. gr. laganna öðlist foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns.
Óumdeilt sé að kærandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020 um sex mánaða samfellt starf á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns og eigi tilkall til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem starfsmaður samkvæmt 4. tölul. 4. gr. laganna. Ágreiningur málsins snúi að útreikningi á greiðslum.
Í 1. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 sé meðal annars kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns, sbr. 4. tölul. 4. gr., í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex almanaksmánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann almanaksmánuð sem barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá almanaksmánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 22. gr., án tillits til þess hvort laun samkvæmt því ákvæði eða reiknað endurgjald samkvæmt 2. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri almanaksmánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna. Í athugasemdum við 23. gr. frumvarpsins er hafi orðið að lögum nr. 144/2020 komi fram að átt sé við almanaksmánuði og að miðað sé við samfellt tímabil sem standi í tólf almanaksmánuði á undan fæðingarmánuði barns.
Í [5.] mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 komi fram að til launa á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 1. til 3. mgr. teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald. Jafnframt skuli telja til launa þau tilvik sem teljist til þátttöku á innlendum vinnumarkaði samkvæmt a. til f. liðum 2. mgr. 22. gr. laga nr. 144/2020. Auk þess skuli telja til launa greiðslur samkvæmt a. og b. lið 5. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa. Þegar um sé að ræða 100% greiðslur á viðmiðunartímabili, í tengslum við tilvik sem falli undir a. til f. liði 2. mgr. 22. gr., sem foreldri hafi átt rétt á skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hefðu miðast við.
Í [6.] mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 sé kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun afli um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Þar segi jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingargjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila skv. 1. til 3. mgr.
Loks komi fram í 1. mgr. 22. gr. laga nr. 144/2020 að fullt starf starfsmanns miðist við 172 vinnustundir á mánuði en þó skuli jafnan tekið tillit til fjölda vinnustunda sem samkvæmt kjarasamningi teljist fullt starf.
Fæðingardagur barns kæranda hafi verið þann X 2025 og skuli því, samkvæmt framangreindum lagaákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hans þá mánuði sem kærandi hafi verið á innlendum vinnumarkaði tímabilið febrúar 2024 til og með janúar 2025.
Samkvæmt upplýsingum frá skattyfirvöldum hafi kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram komi í staðgreiðsluskrá skattyfirvalda um tekjur hans á framangreindu viðmiðunartímabili og telji Fæðingarorlofssjóður að þar með liggi fyrir staðfesting á að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda.
Við vinnslu umsóknar hafi legið fyrir að lögheimili kæranda hafi verið skráð hér á landi þann 3. júní 2024. Því hafi legið fyrir að hann hafi ekki verið starfandi á innlendum vinnumarkaði tímabilið febrúar 2024 til og með maí 2024, sbr. 21. og 22. gr. laganna. Í kjölfarið hafi þeir mánuðir verið undanskildir útreikningi. Því hafi greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði verið reiknaðar út frá meðaltali heildarlauna á tímabilinu júní 2024 til og með janúar 2025. Á því tímabili hafi kærandi verið með greiðslur frá vinnuveitendum sínum B og C sem hafi verið hafðar með í útreikningi á meðaltali heildarlauna hans. Á tímabilinu hafi kærandi einnig verið með greiðslur frá Velferðarsviði Reykjavíkur en þær greiðslur hafi verið dregnar frá útreikningi þar sem þær greiðslur teljist ekki til launa á innlendum vinnumarkaði skv. 5. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020.
Með kæru kæranda hafi fylgt gögn sem hafi ekki borist til Fæðingarorlofssjóðs áður, þ.e. ákvörðun um dvalarleyfi frá Útlendingastofnun. Í ljósi þeirra upplýsinga hafi greiðsluáætlun, dags. 9. apríl 2026, verið endurskoðuð. Í kjölfarið hafi tímabilið júní 2024 til og með september 2024 verið undanskilið útreikningi þar sem kærandi hafi ekki verið á innlendum vinnumarkaði á því tímabili, sbr. einnig 2. mgr. 22. gr. laga nr. 144/2020. Því séu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði reiknaðar út frá meðaltali heildarlauna á tímabilinu október 2024 til og með janúar 2025, þar sem aldrei skuli miða við færri almanaksmánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna skv. lokamálslið 1. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020.
Mánaðarlegar greiðslur til kæranda miðað við 100% fæðingarorlof með barni fæddu þann X 2025 hafi hækkað við þetta úr 275.688 kr. í 406.716 kr. Kæranda hafi verið send ný greiðsluáætlun og bréf, dags. 27. maí 2026, með leiðréttum útreikningi á meðaltali heildarlauna.
Með vísan til framangreinds telji Fæðingarorlofssjóður að þau bréf sem hafi verið send kæranda þann 27. maí 2026, beri með sér réttan útreikning á greiðslum til hans.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 9. apríl 2026, um að mánaðarlegar greiðslur til kæranda vegna fæðingar barns hans yrðu 275.688 kr. Sú fjárhæð var hækkuð 406.716 með greiðsluáætlun, dags. 27. maí 2026.
Samkvæmt 1. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof öðlast foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns. Óumdeilt er að kærandi uppfyllir það skilyrði laganna og á tilkall til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem starfsmaður samkvæmt 4. tölul. 4. gr.
Í 1. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020 segir að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna. Miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Auk þess segir að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 22. gr., án tillits til þess hvort laun samkvæmt því ákvæði eða reiknað endurgjald samkvæmt 2. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.
Barn kæranda fæddist X 2025 og skal því samkvæmt framangreindu mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóði til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hans þá mánuði sem hann var á innlendum vinnumarkaði tímabilið febrúar 2024 til og með janúar 2025. Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála gerði kærandi athugasemd við að þeir mánuðir sem hann hafi ekki verið kominn með dvalar- eða atvinnuleyfi hafi verið teknir með við útreikning á fæðingarorlofsgreiðslum til hans.
Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs hefur komið fram að með kæru hafi fylgt ný gögn, þ.e. ákvörðun um dvalarleyfi frá Útlendingastofnun. Í ljósi þeirra upplýsinga hafi greiðsluáætlun, dags. 9. apríl 2026, verið endurskoðuð. Í kjölfarið hafi tímabilið júní 2024 til og með september 2024 verið undanskilið útreikningi þar sem kærandi hafi ekki verið á innlendum vinnumarkaði á því tímabili, sbr. einnig 2. mgr. 22. gr. laga nr. 144/2020. Því væru greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði reiknaðar út frá meðaltali heildarlauna á tímabilinu október 2024 til og með janúar 2025, þar sem aldrei skuli miða við færri almanaksmánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna skv. lokamálslið 1. mgr. 23. gr. laga nr. 144/2020.
Að mati úrskurðarnefndar er því ljóst að nýr útreikningur Fæðingarorlofssjóðs er í samræmi við ákvæði laga nr. 144/2020. Að því virtu og með vísan til framangreinds er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 27. maí 2026, um mánaðarlegar greiðslur til kæranda, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 27. maí 2026, um mánaðarlegar greiðslur til A, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir