13. ágúst 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 419/2026-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 419/2026

Fimmtudaginn 13. ágúst 2026

A gegn Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. júní 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 5. janúar 2025, um að afturkalla samþykkt á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 2. júlí 2024, sótti kærandi um félagslegt leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg og var umsóknin samþykkt á biðlista. Með ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 5. janúar 2025, var kæranda tilkynnt að hún uppfyllti ekki lengur tilgreind skilyrði reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði og því væri samþykkt á biðlista afturkölluð.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 9. júní 2026. Með bréfi, dagsettu sama dag, var óskað eftir því að kærandi sendi úrskurðarnefndinni afrit af hinni kærðu ákvörðun. Gögn bárust frá kæranda 25. júní 2026. Með bréfi, dags. 1. júlí 2026, var óskað eftir afriti af hinni kærðu ákvörðun frá Reykjavíkurborg. Gögn bárust frá Reykjavíkurborg 3. júlí 2026.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún kæri ákvörðun Reykjavíkurborgar um að fella hana af biðlista með vísan til þess að talið væri að hún ætti íbúð. Kærandi telji að sú ákvörðun hafi verið byggð á misskilningi og óski því eftir að málið verði tekið upp að nýju. Kærandi hafi ekki átt fasteign heldur verið með búseturétt hjá Búseta. Við skilnað hafi kærandi skilað íbúðinni og ekki átt fasteign síðan. Því hafi ekki verið um eignarhald að ræða á þeim tíma sem ákvörðunin hafi verið tekin. Kærandi óski eftir endurupptöku málsins á þeim grundvelli að ákvörðunin hafi verið byggð á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum. Kærandi óski þess að málið verði tekið upp að nýju og að hún verði sett á sama stað á biðlistanum. Aðstæður kæranda séu mjög slæmar, bæði heilsufarslega og félagslega. Kærandi sé öryrki með hreyfihömlun vegna ýmissa sjúkdóma. Einnig glími kærandi við mikla einangrun, fjárhagsáhyggjur, kvíða og þunglyndi. Kærandi verði að komast í betra og ódýrara húsnæði.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 5. janúar 2025, um að afturkalla samþykkt á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 9. júní 2026 vegna framangreindrar ákvörðunar Reykjavíkurborgar. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þess að kæra í máli þessu barst meira en ári eftir að ákvörðun var tilkynnt kæranda er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir